Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Karl Garðarsson
8. þm. RS, F, KG
Karl Garðarsson

   
Jónas Jónassen

Jónas Jónassen

      F. í Reykjavík 18. ágúst 1840, d. 22. nóv. 1910. For.: Þórður Jónasson (f. 26. febr. 1800, d. 25. ágúst 1880) dómari og alþm. og k. h. Dorothea Sophia Rasmusdóttir Jónassen, f. Lynge (f. 4. júlí 1808, d. 26. jan. 1890) húsmóðir. Bróðir Theodórs Jónassens alþm. K. (30. nóv. 1871) Þórunn Pétursdóttir Jónassen, f. Havstein (f. 12. júní 1850, d. 18. apríl 1922) húsmóðir. For.: Pétur Havstein alþm. og 1. k. h. Guðrún Hannesdóttir Havstein, dóttir Hannesar Stephensens alþm. Dóttir: Guðrún Soffía (1873).
      Stúdentspróf Lsk. 1860. Læknisfræðipróf Hafnarháskóla 1866. Dr. med. Hafnarháskóla 1882. Framhaldsnám febr.—ágúst 1868, maí—sept. 1882 og júní—sept. 1892 í sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn.
      Staðgöngumaður Jóns Hjaltalíns landlæknis í utanför hans apríl—júní 1867. Settur 1868 aðstoðarmaður landlæknis við læknakennslu og jafnframt sýslulæknir í Kjósar- og Borgarfjarðarsýslum. Varð sama ár læknir við sjúkrahúsið í Reykjavík. Héraðslæknir í Reykjavíkurhéraði 1873—1895. Landlæknir 1895—1906. Kennari við Læknaskólann frá stofnun hans 1876 og forstöðumaður hans 1881—1882 og 1895—1906. Læknir við franska sjómannaspítalann í Reykjavík 1903—1905.
      Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1888—1900.

      Alþm. Reykv. 1886—1892, kgk. alþm. 1899—1905 (Heimastjfl.).

      Samdi rit og greinar um veðurfar, heilbrigðismál, sjúkdóma og lækningar.

Síðast breytt 04.01.2010. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.