Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Óttarr Proppé
11. þm. RS, Bf, ÓP
Óttarr Proppé

   
Óli Þ. Guðbjartsson

Óli Þ. Guðbjartsson (Óli Þorbjörn)

      F. á Bíldudal 27. ágúst 1935. For.: Guðbjartur Ólason (f. 16. júní 1911) skipstjóri þar og k. h. María Guðmundsdóttir (f. 9. sept. 1913, d. 27. apríl 1975) húsmóðir. K. (24. mars 1962) Þuríður Svava Kjartansdóttir (f. 9. maí 1933) húsmóðir. For.: Kjartan Magnússon og k. h. Anna Guðmundsdóttir. Börn: Kjartan (1961), Anna María (1964), Guðbjartur (1969).
      Kennarapróf KÍ 1955. Framhaldsnám í sögu og dönsku við Kennaraháskólann í Kaupmannahöfn 1957—1959. Framhaldsnám í skólastjórn við háskólann í Suður-Flórída, Bandaríkjunum, 1979—1980.
      Kennari við Barnaskóla Selfoss 1955—1957. Kennari við Gagnfræðaskólann á Selfossi (nú Sólvallaskóla) 1959—1970, skólastjóri síðan 1970. Skip. 10. sept. 1989 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl.
      Í hreppsnefnd Selfoss 1962—1978, oddviti 1970—1978. Í bæjarstjórn Selfoss 1978—1986, forseti bæjarstjórnar 1982—1983 og 1984—1985. Formaður fræðsluráðs Suðurlands 1975—1987. Formaður FUS í Árnessýslu 1963—1967. Í stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Árnessýslu 1963—1968. Í stjórn SUS 1965—1969. Í Norðurlandaráði 1987—1989. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1987—1989.

      Alþm. Suðurl. 1987—1991 (Borgfl.).
      Vþm. Suðurl. febr. 1985 (Sjálfstfl.).
      Dóms- og kirkjumálaráðherra 1989—1991.
      1. varaforseti Nd. 1987—1989.
      Formaður þingflokks Borgaraflokksins 1988—1989.


Síðast breytt 16.08.2001. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.