Sighvatur Björgvinsson
Þingseta
Landskjörinn alþingismaður (Vestfirðinga) 1974–1978, alþingismaður Vestfirðinga 1978–1983 og 1987–2001 (Alþýðuflokkur, þingflokkur jafnaðarmanna, Samfylkingin).
Varaþingmaður Vestfirðinga febrúar–mars 1984, febrúar–mars 1985, október 1985 til febrúar 1986.
Fjármálaráðherra 1979–1980, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1991–1993, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda 1993–1995 og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1994–1995, formaður ráðherranefndar samstarfsráðherra Norðurlanda 1994–1995.
2. varaforseti neðri deildar 1987–1988.
Formaður þingflokks Alþýðuflokksins 1978–1983.
Æviágrip
Fæddur í Reykjavík 23. janúar 1942. Foreldrar: Björgvin Sighvatsson (fæddur 25. apríl 1917, dáinn 14. október 2009) skólastjóri á Ísafirði og kona hans Jóhanna Oddný Margrét Sæmundsdóttir (fædd 28. ágúst 1919, dáin 17. maí 2010) handavinnukennari og húsmóðir. Maki (28. desember 1965): Björk Melax (fædd 19. ágúst 1941) húsmóðir. Foreldrar: Stanley Melax og kona hans Guðrún Ólafsdóttir Melax. Börn: Bryndís (uppeldisdóttir, 1963), Elín Kristjana (1966), Björgvin Sturla (1968), Rúnar Stanley (1972).
Stúdentspróf MA 1961. Fyrrihlutapróf í viðskiptafræði HÍ 1966, en lauk ekki námi.
Starfsmaður Sjómannasambands Íslands og verkalýðsmálanefndar Alþýðuflokksins 1964–1965. Fulltrúi á skrifstofu iðnfræðsluráðs 1967–1969. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1969–1974. Skipaður 15. október 1979 fjármálaráðherra, lausn 4. desember 1979, en gegndi störfum til 8. febrúar 1980; fór jafnframt með Hagstofu Íslands. Framkvæmdastjóri Norræna félagsins 1984–1991. Skipaður 30. apríl 1991 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 14. júní 1993. Skipaður 14. júní 1993 iðnaðar- og viðskiptaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, skipaður einnig heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 24. júní 1994, lausn 18. apríl 1995, en gegndi störfum til 23. apríl. Framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands frá 2001.
Ritari Sambands ungra jafnaðarmanna 1964–1966. Formaður FUJ í Reykjavík 1965. Í flokksstjórn Alþýðuflokksins síðan 1967. Ritari Fulltrúaráðs alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík 1965. Formaður Alþýðuflokksins 1996–2001. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1976, 1988 og 1990 og fundi Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1976–1983. Formaður stjórnar Framkvæmdastofnunar ríkisins 1978–1980. Í Þingvallanefnd 1978–1980 og 1993–1995. Í stjórn Endurbótasjóðs menningarstofnana síðan 1990. Í Norðurlandaráði 1989–1991 og 1999–2001. Í þingmannanefnd EFTA/EES 1995.
Landskjörinn alþingismaður (Vestfirðinga) 1974–1978, alþingismaður Vestfirðinga 1978–1983 og 1987–2001 (Alþýðuflokkur, þingflokkur jafnaðarmanna, Samfylkingin).
Varaþingmaður Vestfirðinga febrúar–mars 1984, febrúar–mars 1985, október 1985 til febrúar 1986.
Fjármálaráðherra 1979–1980, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1991–1993, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda 1993–1995 og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1994–1995, formaður ráðherranefndar samstarfsráðherra Norðurlanda 1994–1995.
2. varaforseti neðri deildar 1987–1988.
Formaður þingflokks Alþýðuflokksins 1978–1983.
Ritstjóri: Alþýðublaðið (1969–1974).
Æviágripi síðast breytt 18. mars 2020.
Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur