Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Birgir Ármannsson
9. þm. RN, S, BÁ
Birgir Ármannsson

   
Benedikt Gröndal

Benedikt Gröndal

      F. á Hvilft í Önundarfirði 7. júlí 1924, d. 20. júlí 2010. For.: Sigurður Gröndal (f. 3. nóv. 1903, d. 6. júní 1979) rithöfundur og veitingamaður, síðar yfirkennari í Reykjavík og k. h. Mikkelína María Sveinsdóttir (f. 9. jan. 1901), systir Hálfdanar Sveinssonar vþm. K. (11. ágúst 1947) Heidi Gröndal (f. 13. apríl 1922) bókavörður. For.: Werner Jaeger og k. h. Theodora Jaeger. Synir: Jón (1949), Tómas (1955), Einar (1960).
      Stúdentspróf MR 1943. BA-próf 1946 með sögu sem aðalgrein við Harvard-háskóla, Bandaríkjunum. Framhaldsnám sumarið 1947 í Oxford á Englandi.
      Íþróttafréttaritari Alþýðublaðsins og jafnframt blaðamaður við það öðru hverju 1938—1943, fréttastjóri þess 1946—1950. Ritstjóri Samvinnunnar 1951—1958 og jafnframt síðari árin forstöðumaður fræðsludeildar Sambands íslenskra samvinnufélaga. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1959—1969. Skip. 1969 forstöðumaður Fræðslumyndasafns ríkisins. Skip. 1. sept. 1978 utanríkisráðherra, lausn 12. okt. 1979, en gegndi störfum til 15. okt. Skip. 15. okt. 1979 forsætis- og utanríkisráðherra, lausn 4. des. 1979, en gegndi störfum til 8. febr. 1980. Sendiherra í Svíþjóð 1982—1987, í Austurlöndum 1987—1989, hjá Sameinuðu þjóðunum í New York 1989—1991.
      Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1950—1954. Í stjórn Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1956—1959, sótti einnig fundi þeirra 1962—1965, 1968, 1970, 1975 og 1977. Í útvarpsráði 1956—1971, formaður þess 1957—1959 og 1960—1971. Í nýbýlastjórn, síðar landnámsstjórn 1959—1974. Skip. 1961 í endurskoðunarnefnd vegalaga og í nefnd til að endurskoða lög um veitingasölu, gistihúsahald o. fl. og 1964 í nefnd til að semja frumvarp um landgræðslu. Í Rannsóknaráði ríkisins 1956—1971. Kosinn 1966 í endurskoðunarnefnd laga um þingsköp Alþingis. Í endurskoðunarnefnd hafnalaga 1966. Í endurskoðunarnefnd laga um utanríkisþjónustu 1968 og í endurskoðunarnefnd laga um friðun Þingvalla og um náttúruvernd 1968. Í endurskoðunarnefnd útvarpslaga 1969. Í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins 1971—1978. Formaður Alþýðuflokksins 1974—1980. Skip. í nefnd um nýtingu íslensks sjónvarps og útvarps 1974. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1966. Fulltrúi á hafréttarráðstefnum Sameinuðu þjóðanna. Í bankaráði Seðlabanka Íslands 1981—1982.

      Landsk. alþm. (Borgf.) 1956—1959, (Vesturl.) 1971— 1978, alþm. Vesturl. 1959—1971, alþm. Reykv. 1978—1982 (Alþfl.).
      Utanríkisráðherra 1978—1979, forsætis- og utanríkisráðherra 1979—1980.
      1. varaforseti Nd. 1959—1971, 2. varaforseti Nd. 1974.

      Hefur samið sagnfræðirit og rit um þjóðfélagsmál.
      Ritstjóri: Voröld (1948). Samvinnan (1951—1958). Alþýðublaðið (1959—1969).

Síðast breytt 02.09.2010. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.