Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Bjarni Benediktsson
2. þm. SV, S, BjarnB
Bjarni Benediktsson

   
Birkir Jón Jónsson

Birkir Jón Jónsson

      F. á Siglufirði 24. júlí 1979. For.: Jón Sigurbjörnsson (f. 24. okt. 1950) fjármálastjóri Menntaskólans við Hamrahlíð, bróðir Boga Sigurbjörnssonar vþm., og k. h. Björk Jónsdóttir (f. 15. ágúst 1951) starfsmaður Íslandsbanka.
      Stúdentspróf Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki 1999. Nám í stjórnmálafræði HÍ 2000-2004. MBA í viðskiptafræði HÍ 2009.
      Vann um árabil í Sparisjóði Siglufjarðar með námi. Aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 2001-2003.
      Í stjórn Félags ungra framsóknarmanna á Siglufirði frá 1999. Í stjórn Sambands ungra framsóknarmanna 1999-2001 og varaformaður þess 2002-2003. Í stjórn Varðbergs 2000-2002. Í úthlutunarnefnd styrktarsjóðs til atvinnumála kvenna og í stjórn hússjóðs Öryrkjabandalagsins 2001-2003. Í stjórn Íbúðalánasjóðs 2002. Nefndarmaður í Kvikmyndaskoðun 2002-2003. Í bæjarstjórn Fjallabyggðar frá 2006. Formaður stjórnarnefndar um málefni fatlaðra 2003. Varaformaður Framsóknarflokksins síðan 2009.

      Alþm. Norðaust. síðan 2003 (Framsfl.).
      Fjárlaganefnd 2003-2007 (form. 2006-2007), félagsmálanefnd 2003-2007, félags- og tryggingamálanefnd 2007-2008, samgöngunefnd 2003-2004, iðnaðarnefnd 2004-2006 (form.), sjávarútvegsnefnd 2004-2005, landbúnaðarnefnd 2006-2007, viðskiptanefnd 2007-2009, efnahags- og skattanefnd 2008-.
      Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2003-2005 og 2006-2007, Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 2008-2009. Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2009-.


Síðast breytt 14.08.2009. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


www.birkir.blog.is/blog/birkir/

Símanúmer
Á dvalarstað: 587-2446
Farsími: 898-2446

Þingstörf
2. þm. Norðaust., Framsfl., BJJ


Nefndasetur:
Efnahags- og skattanefnd
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins
Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)


Hagsmunaskráning

Curriculum Vitae in English




Þingmenn í stafrófsröð frá 1875


Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.