F. í Neskaupstað 17. jan. 1963. For.: Herbert Jónsson (f. 2. mars 1922, d. 24. júlí 2000) verkamaður og Ragnheiður Stefánsdóttir (f. 6. okt. 1926) sjúkraliði. M. 1. Kristjana Blöndal (f. 28. des. 1964) uppeldisfræðingur. Þau skildu. For.: Halldór Blöndal alþm. og ráðherra og Renata Brynja Kristjánsdóttir. M. 2. Sigurveig María Ingvadóttir (f. 14. apríl 1962). For.: Ingvi Rafn Albertsson og María Hjálmarsdóttir. Sonur Tryggva og Kristjönu: Halldór Reynir (1990). Dóttir Tryggva og Sigurveigar: Anna Ragnheiður (1997). Stjúpbörn, börn Sigurveigar: Mist Hálfdánardóttir (1988), Veigar Friðgeirsson (1993).
Iðnrekstrarfræðipróf Tækniskóla Íslands 1992. M.Sc.-próf í hagfræði HÍ 1995. Doktorspróf í hagfræði frá Árósaháskóla 1998.
Hljóðmaður hjá Stúdíó Mjöt 1981-1986. Klippari á Stöð 2 1986-1989. Starfaði fyrir fjármálaráðuneytið og Iðntæknistofnun sumarið 1991. Sérfræðingur hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands 1992-1995, forstöðumaður þar 1995-2006. Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands 2004-2006. Forstjóri Askar Capital 2006-2009. Efnahagsráðgjafi forsætisráðherra 2008. Prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík frá 2009.
Alþm. Norðaust. 2009-2013 (Sjálfstfl.).
Efnahags- og skattanefnd 2009-2011, iðnaðarnefnd 2009-2011, efnahags- og viðskiptanefnd 2011-2012, allsherjar- og menntamálanefnd 2012-2013.
Síðast breytt 29.04.2013. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur