486. mál þingsályktunartillaga Þál. 41/139 139. löggjafarþingi 2010—2011.
Tengd mál og efnisorð. Innsend erindi og umsagnir.
Fyrri umræða
| Þingskjöl |
| Útbýtingardagur | Þingskjal | Tegund skjals | Flutningsmaður |
| 03.02.2011 |
788 |
stjórnartillaga |
utanríkisráðherra |
Málið gekk til
utanríkismálanefndar 17.02.2011.
Umsagnabeiðnir utanríkismálanefndar sendar 25.02.2011 frestur til 15.03.2011
Síðari umræða
| Þingskjöl |
| Útbýtingardagur | Þingskjal | Tegund skjals | Flutningsmaður |
| 10.06.2011 |
1732 |
þingsályktun í heild | |
Meðferð og framkvæmd ályktunarinnar
13. nóvember 2012
Frá samþykkt þingsályktunartillögunnar hefur framkvæmd alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands byggst á áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2011-2014. Í áætluninni er fjallað um skyldur Íslands í alþjóðlegu þróunarstarfi, sett eru fram markmið um
aukningu framlaga til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu auk þess sem settar eru fram áherslur
Íslands, þ.m.t. á ákveðna málaflokka, alþjóðastofnanir og samstarfslönd. Þá er fjallað um
alþjóðlegt samstarf og viðmið í þróunarstarfi Íslands og lögð er rík áhersla á árangur og
skilvirkni þróunarstarfs. Jafnframt er fjallað um innra og ytra starf, samþættingu þróunarstarfs Íslands og eflingu samstarfs við félagasamtök auk þess sem hlutverk Alþingis við
eftirlit og stefnumótun er áréttað. Fyrir hvern lið áætlunarinnar eru sett fram markmið auk
áætlunar um aðgerðir til að stuðla að framgangi þeirra. Stærstur hluti fyrirhugaðra aðgerða
hefur komið til framkvæmda. Í samræmi við lög um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands
nr. 121/2008 mun ráðherra á vorþingi 2013 gefa Alþingi skýrslu um framkvæmd áætlunarinnar ásamt því að leggja fram tillögu til endurskoðaðrar áætlunar um þróunarsamvinnu
Íslands sem taka mun til áranna 2013-2016.
Gert 20.6.2013 2:52 81.15.31.19