Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um húsnæðissparnaðarreikninga1)
1985 nr. 49 26. júní
1)Falla brott 1. janúar 1997, en verður þó beitt við álagningu á því ári, sbr. l. 111/1992, 32. gr.
1. gr. Innlegg manna á húsnæðissparnaðarreikninga skapa rétt til skattafsláttar [skv. 2. mgr.] 1) innan þeirra marka og með þeim skilyrðum er í lögum þessum greinir, sbr. 68. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, enda beri þeir ótakmarkaða skattskyldu hér á landi samkvæmt 1. gr. þeirra laga.
[Skattafsláttur skv. 1. mgr. skal vera sem hér segir:
1. Á árinu 1994 skal skattafslátturinn vera 20% af innleggi á tekjuárinu 1993.
2. Á árinu 1995 skal skattafslátturinn vera 15% af innleggi á tekjuárinu 1994.
3. Á árinu 1996 skal skattafslátturinn vera 10% af innleggi á tekjuárinu 1995.
4. Á árinu 1997 skal skattafslátturinn vera 5% af innleggi á tekjuárinu 1996.
5. Eftir árslok 1996 skapa innlegg á húsnæðissparnaðarreikninga ekki rétt til skattafsláttar samkvæmt lögum þessum.] 1)
1)L. 111/1992, 30. gr.
2. gr. Húsnæðissparnaðarreikninga geta þeir menn, er um ræðir í 1. gr. og náð hafa 16 ára aldri á tekjuárinu, stofnað með samningi við innlenda viðskiptabanka og sparisjóði.
Í samningnum skal kveðið á um reglubundinn sparnað allan binditíma reikningsins skv. 3. gr. Á hverju heilu tekjuári skal lágmarksfjárhæð vera 12.000 kr. en hámarksfjárhæð 120.000 kr., sbr. þó 7. gr. um breytingar samkvæmt byggingarvísitölu. Spariféð leggist inn á reikninginn eigi sjaldnar en á hverjum ársfjórðungi almanaksársins og nemi á ársfjórðungi eigi lægri fjárhæð en 3.000 kr. og eigi hærri fjárhæð en 30.000 kr.
Samið skal fyrir fram til a.m.k. eins árs í senn um jöfn mánaðarleg eða ársfjórðungsleg innlegg en umsaminni fjárhæð má breyta árlega miðað við upphaf almanaksárs innan þeirra marka er getur í 2. mgr. Þó er heimilt að semja fyrir fram um lækkun á umsömdum sparnaði miðað við ársfjórðunga.
Hver maður getur aðeins átt einn húsnæðissparnaðarreikning í senn.
3. gr. Húsnæðissparnaðarreikningar skulu bundnir til tíu ára, talið frá upphafi þess mánaðar er sparnaður hófst. Að þeim tíma liðnum er innstæða til frjálsrar ráðstöfunar reikningseiganda. Þeir, sem orðnir eru 67 ára eða eru 75% öryrkjar, geta þó fengið fé sitt til frjálsrar ráðstöfunar að fimm árum liðnum. Framlengja má binditíma umfram tíu ár um eitt ár í senn, þó mest um fimm ár.
Kaupi reikningseigandi íbúðarhúsnæði til eigin nota eða hefji byggingu slíks húsnæðis skal innstæðan þó laus frá þeim tíma er hann staðfestir kaupin eða bygginguna við banka eða sparisjóð með framvísun kaupsamnings eða vottorðs byggingarfulltrúa um að bygging sé hafin, þó aldrei fyrr en full þrjú ár eru liðin frá því að fyrst var lagt inn á reikninginn. Sama gildir ef reikningseigandi hefur lagt í verulegar endurbætur á eigin íbúðarhúsnæði enda nemi kostnaður við endurbæturnar a.m.k. 20% af fasteignamati húsnæðisins í ársbyrjun og reikningseigandi framvísi vottorði skattstjóra þar að lútandi. Úttektarfjárhæð má þó eigi fara fram úr kostnaðinum við endurbæturnar.
4. gr. Húsnæðissparnaðarreikningar eru sérstakir reikningar við innlenda banka eða sparisjóði sem bera skulu nafn og nafnnúmer eiganda. Bankar eða sparisjóðir skulu ókeypis og ótilkvaddir afhenda skattstjóra upplýsingar í því formi, sem ríkisskattstjóri ákveður, um innstæður hvers manns á slíkum reikningi, um innlegg á og úttekt af slíkum reikningum á árinu og önnur atriði er máli skipta.
Húsnæðissparnaðarreikningar skulu á hverjum tíma njóta bestu ávöxtunarkjara almennra innlánsreikninga í viðkomandi banka eða sparisjóði.
Í samningi um húsnæðissparnaðarreikning skal tekið fram hvort reikningseigandi eigi við úttekt af reikningnum rétt á láni frá viðkomandi banka eða sparisjóði, hvert hlutfall það lán sé af innstæðunni og með hvaða kjörum slík lán standi til boða.
Óski banki eða sparisjóður eftir að stofna innlánaflokk húsnæðissparnaðarreikninga í samræmi við ákvæði laga þessara skal hann fyrir fram leita staðfestingar fjármálaráðherra á að fyrirhugað reikningsform fullnægi skilyrðum laganna.
5. gr. Dragist innborgun umsamins innleggs eða hluta þess fram yfir lok ársfjórðungs er það skyldi lagt inn samkvæmt samningi við banka eða sparisjóð skv. 2. gr. skapar sá hluti innleggs, sem dregst fram yfir lok ársfjórðungs, ekki rétt til skattafsláttar.
Hafi ekki verið gerð skil á öllu umsömdu innleggi fyrir lok almanaksárs skapar innlegg ársins engan rétt til skattafsláttar og skal skattstjóri þá gera reikningseiganda að endurgreiða þann skattafslátt sem honum hefur nýst vegna innleggs á reikninginn á næstu tveim árum þar á undan að viðbættu 25% álagi. Sama gildir brjóti reikningseigandi að öðru leyti í verulegum atriðum þau skilyrði sem um reikningana gilda. [Ákvæði 1. málsl. þessarar málsgreinar skulu ekki gilda þótt maður, sem stofnað hefur húsnæðissparnaðarreikning fyrir 1. janúar 1993, geri ekki skil á öllu umsömdu innleggi sem leggja bar inn eftir þann tíma.] 1)
Verði ekki af kaupum, þrátt fyrir gerð kaupsamnings samkvæmt 2. mgr. 3. gr., skal leggja úttekið fé aftur inn á reikning innan þriggja mánaða frá því að ljóst er að ekki varð af kaupunum. Ella skal endurgreiða allan nýttan skattafslátt að viðbættu 25% álagi, sbr. þó 1. mgr. 97. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt.
Hafi gjaldþol manns skerst verulega vegna þeirra atvika er greinir í 66. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, eftir að samið var um stofnun húsnæðissparnaðarreiknings skulu ákvæði 2. mgr. þó ekki gilda ef ætla má að þessi atvik hafi gert honum ókleift að standa við samning um reglubundinn sparnað.
Brot á samningi um reglubundinn sparnað breytir engu um binditíma reiknings. skv. 3. gr.
1)L. 111/1992, 31. gr.
6. gr. Reikningseigandi getur ekki framselt, veðsett né á annan hátt ráðstafað innstæðu sinni á húsnæðissparnaðarreikningi. Innstæðan er undanþegin aðför skuldheimtumanna. Verði reikningseigandi gjaldþrota fellur binding innstæðu niður. Við andlát innstæðueiganda rennur innstæðan til dánarbúsins án bindingar. Komi til skilnaðar má skipta inneign á reikningum milli hjónanna en slík skipting hefur engin áhrif á binditíma reikninganna.
7. gr. Fjárhæðir þær, er um getur í 2. mgr. 2. gr., skulu vera grunnfjárhæðir. Skulu þær breytast árlega í samræmi við breytingar er verða kunna á byggingarvísitölu, í fyrsta skipti vegna innborgana á árinu 1986 miðað við breytingu á byggingarvísitölu frá 31. desember 1984 til 31. desember 1985. Ríkisskattstjóri skal fyrir upphaf tekjuárs birta nýju fjárhæðirnar.
8. gr. Fjármálaráðherra setur með reglugerð 1) nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara.
1)Rg. 24/1989.
9. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi …