Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2017. Útgáfa 146b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um auknar ábyrgðir vegna norrænnar fjárfestingaráætlunar fyrir Eystrasaltsríkin 1996–1999 og nýs lánaflokks í Norræna fjárfestingarbankanum til umhverfismála í grannhéruðum Norðurlandanna
1996 nr. 162 31. desember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 2. janúar 1997.
1. gr. Ríkisstjórninni er fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að ábyrgjast hluta Íslands, að fjárhæð allt að 330.000 ECU, gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum vegna fjárfestingarlána og fjárfestingarábyrgða í tengslum við norræna fjárfestingaráætlun fyrir Eystrasaltsríkin.
2. gr. Ríkisstjórninni er fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að ábyrgjast hluta Íslands, að fjárhæð allt að 1.100.000 ECU, gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum vegna lána til umhverfismála í grannhéruðum Norðurlandanna.
3. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að ganga frá samningi við Norræna fjárfestingarbankann um ábyrgðir skv. 1. og 2. gr. Jafnframt er ríkisstjórninni heimilt að staðfesta breytingar á 6. gr. samþykkta bankans með því að bæta við greinina c-lið um lán til umhverfismála í grannhéruðum Norðurlandanna.
4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.