Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2017. Útgáfa 146b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um notkun raflagna og raffanga í núverandi ástandi á íbúðar- og skólasvæði fyrrum varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli
2007 nr. 135 12. nóvember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 17. nóvember 2007. Breytt með l. 39/2014 (tóku gildi 1. sept. 2014).
1. gr. Heimilt er að nota raflagnir og rafföng í núverandi ástandi á íbúðar- og skólasvæði fyrrum varnarsvæðis á Keflavíkurflugvelli til 1. október 2010. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. skal fyrir 1. október 2007 leggja fram verkáætlun til [Mannvirkjastofnunar] 1) um hvernig staðið verði að breytingum til samræmis við íslenskar kröfur fyrir 1. október 2010.
1)L. 39/2014, 13. gr.
2. gr. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. skal tilnefna umsjónarmann öryggismála á svæðinu sem starfi í samvinnu við [Mannvirkjastofnun]. 1) Hann skal uppfylla þær hæfniskröfur sem gerðar eru í reglugerð nr. 264/1971, um raforkuvirki, með síðari breytingum.
1)L. 39/2014, 13. gr.
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.