Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2018. Útgáfa 148a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild fjármálafyrirtækis til að veita veðréttindi í tengslum við uppgjör vegna ráðstöfunar Fjármálaeftirlitsins á eignum og skuldum vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði
2010 nr. 67 22. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 24. júní 2010. Falla úr gildi að liðnum 10 árum frá gildistöku þeirra skv. 6. gr.
1. gr.
Fjármálafyrirtæki er heimilt að veita veð í eignum sínum, þar á meðal kröfuréttindum og undirliggjandi veðréttindum sem tengjast þeim, í tengslum við uppgjör vegna ráðstöfunar Fjármálaeftirlitsins á eignum og skuldum fjármálafyrirtækis á grundvelli 100. gr. a laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, sbr. 5. mgr. 5. gr. laga nr. 125/2008, sbr. ákvæði til bráðabirgða VI í lögum nr. 161/2002. Fjármálafyrirtækinu er enn fremur heimilt að bæta frekari eignum í hið veðsetta safn til að viðhalda fullnægjandi veðhlutfalli, og skipta út einstökum eignum, samkvæmt samkomulagi við veðhafa.
2. gr.
Að því marki sem veðréttur, sem stofnast á grundvelli 1. gr., varðar kröfuréttindi eða undirliggjandi veð sem tengjast slíkum kröfuréttindum öðlast veðrétturinn réttarvernd við þinglýsingu yfirlýsingar þess efnis að fjármálafyrirtæki hafi nýtt heimild sína skv. 1. gr. á blað fjármálafyrirtækis í lausafjárbók. Er þá ekki þörf á frekari ráðstöfunum til að veðrétturinn öðlist réttarvernd, hvort sem varðar veðsetningu kröfuréttinda eða undirliggjandi veðréttinda.
Ákvæði 46. gr. laga um samningsveð, nr. 75/1997, gilda ekki um veðsetningu almennrar fjárkröfu, sbr. 45. gr. laga um samningsveð, samkvæmt lögum þessum.
Um veðsetningu viðskiptabréfa á grundvelli 1. gr. skal þó farið eftir ákvæðum 43. gr. laga um samningsveð, nr. 75/1997.
3. gr.
Veðsetning eigna samkvæmt heimild 1. gr. laga þessara skal ekki sæta riftun samkvæmt ákvæðum gjaldþrotaskiptalaga er varða ráðstafanir þrotamanns.
4. gr.
Um annað en kveðið er á um í lögum þessum gilda ákvæði laga um samningsveð, nr. 75/1997, um veðsetningu eigna samkvæmt lögum þessum.
5. gr.
Ákvæði laga þessara gilda einnig um önnur fyrirtæki, eftir atvikum, sem stofnuð hafa verið til að ganga frá uppgjöri á eignum og skuldbindingum fjármálafyrirtækis vegna ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins sem tekin hefur verið á grundvelli 100. gr. a laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, sbr. 5. mgr. 5. gr. laga nr. 125/2008, sbr. ákvæði til bráðabirgða VI í lögum nr. 161/2002. Leita skal staðfestingar Fjármálaeftirlitsins á að viðkomandi fyrirtæki falli undir ákvæði þessarar málsgreinar áður en því er beitt.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði laga þessara falla úr gildi að liðnum 10 árum frá gildistöku þeirra.