Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 3. maí 2019. Útgáfa 149b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um innlenda lánsfjáröflun ríkissjóðs
1983 nr. 79 28. desember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 30. desember 1983. Breytt með l. 117/1989 (tóku gildi 30. des. 1989; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 15. gr.) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Til þess að afla innlends lánsfjár í samræmi við heimildir fjárlaga eða lánsfjárlaga hverju sinni er [ráðherra] 1) fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að gefa út til sölu skuldarviðurkenningar ríkissjóðs í formi ríkisskuldabréfa, spariskírteina og ríkisvíxla.
1)L. 126/2011, 98. gr.
2. gr.
Ríkisskuldabréf og spariskírteini má gefa út með verðtryggingu miðað við vísitölu sem [ráðherra] 1) ákveður, gengi erlendra gjaldmiðla eða hin sérstöku dráttarréttindi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (SDR). [Ráðherra] 1) er heimilt að ákveða lánskjör þessara bréfa og er ekki bundinn við almennar vaxtaákvarðanir Seðlabanka Íslands við þá ákvörðun.
[Ráðherra] 1) getur ákveðið að gefa út ríkisvíxla sem greiðast skulu eftir ákveðinn tíma frá útgáfudegi, sem þó má ekki vera lengri en 12 mánuðir. [Ráðherra] 1) getur ákveðið forvexti af víxlum þessum. Hann getur einnig ákveðið í stað forvaxta að víxlar þessir verði seldir á almennum markaði, þar á meðal samkvæmt tilboðum. Um víxla þessa skulu gilda almennar reglur laga um eiginvíxla.
1)L. 126/2011, 98. gr.
3. gr.
Lánsskjöl skv. 2. gr. skulu vera stimpilgjaldsfrjáls. … 1)
[Ráðherra] 2) getur falið Seðlabanka Íslands að annast útgáfu og sölu lánsskjala skv. 2. gr.
[Ráðherra] 2) er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd laga þessara með reglugerð.
1)L. 117/1989, 15. gr. 2)L. 126/2011, 98. gr.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.