Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 10. janúar 2020. Útgáfa 150a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um framkvæmd samnings um bann við notkun, birgðasöfnun, framleiðslu og flutningi jarðsprengna gegn liðsafla og um eyðingu þeirra
2001 nr. 26 7. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 16. maí 2001. Breytt með: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra eða utanríkisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Bann við jarðsprengjum gegn liðsafla.
Enginn má nota, þróa, framleiða, verða sér úti um með öðrum hætti, safna birgðum af, varðveita eða flytja jarðsprengjur gegn liðsafla þannig að það stríði gegn samningnum um bann við notkun, birgðasöfnun, framleiðslu og flutningi jarðsprengna gegn liðsafla og um eyðingu þeirra frá 18. september 1997.
2. gr. Innlent eftirlit.
Ríkislögreglustjóri fer með eftirlit með framkvæmd laga þessara og samningsins.
Á varnarsvæðum fer [ráðherra] 1) með lögsögu, sbr. lög um yfirstjórn mála á varnarsvæðunum o.fl.
1)L. 126/2011, 319. gr.
3. gr. Alþjóðlegt eftirlit.
Rannsóknarsendinefndum sem starfa á grundvelli samningsins er heimilt að framkvæma hér á landi skoðanir sem kveðið er á um í samningnum í þeim tilgangi að fylgjast með hvort Ísland framfylgir samningsskuldbindingum sínum. Fulltrúar [ráðuneytisins] 1) og ríkislögreglustjóra skulu vera viðstaddir slíkar skoðanir.
Þeir sem eru í rannsóknarsendinefnd sem starfar á grundvelli samningsins skulu njóta friðhelgi og forréttinda hér á landi eins og kveðið er á um í samningnum.
1)L. 126/2011, 319. gr.
4. gr. Reglugerðarheimild.
Ráðherra sem í hlut á getur í reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd laganna.
5. gr. Refsiákvæði.
Brot gegn lögum þessum og reglum samkvæmt þeim varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Nú er brotið ítrekað eða stórfellt og getur refsing þá orðið fangelsi allt að fjórum árum.
Tilraun eða hlutdeild í brotum samkvæmt lögum þessum er refsiverð skv. III. kafla almennra hegningarlaga.
6. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi.