Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 15. október 2021. Útgáfa 151c. Prenta í tveimur dálkum.
Forsetaúrskurður um sendiráð, fastanefndir hjá alþjóðastofnunum og sendiræðisskrifstofur
2020 nr. 105 21. júlí
Tók gildi 5. ágúst 2020.
Samkvæmt tillögu utanríkisráðherra og með vísan til 4. gr. laga nr. 39/1971, um utanríkisþjónustu Íslands, eru hér með sett eftirfarandi ákvæði:
1. a. Sendiráð skulu vera í Berlín, Brussel, Genf, Helsinki, Kampala, Kaupmannahöfn, Lilongwe, London, Moskvu, Nýju-Delí, Ottawa, Ósló, París, Peking, Stokkhólmi, Tókýó og Washington. Sendiráðin í Genf, London og París skulu jafnframt gegna hlutverki fastanefnda gagnvart nánar tilteknum alþjóðastofnunum sem Ísland á aðild að. Sendiráðin í Brussel og Kampala gegna hlutverki sendiskrifstofa gagnvart nánar tilteknum alþjóðastofnunum.
b. Fastanefndir skulu vera í Brussel, New York, Róm, Strassborg og Vín. Fastanefndin í New York skal jafnframt gegna hlutverki sendiráðs gagnvart nánar tilteknum ríkjum.
c. Aðalræðisskrifstofur skulu vera í New York, Nuuk, Winnipeg og Þórshöfn.
2. Umdæmi sendiráða skulu vera sem hér segir:
a. Berlín. Auk Þýskalands skal umdæmi sendiráðsins vera Króatía, Svartfjallaland, Pólland og Serbía.
b. Brussel. Auk Belgíu skal umdæmi sendiráðsins vera Holland, Lúxemborg og San Marínó. Sendiráðið skal jafnframt gegna hlutverki sendiskrifstofu gagnvart Evrópusambandinu (EU).
c. Genf. Auk Sviss skal umdæmi sendiráðsins vera Liechtenstein. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA), skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf (UNOG), Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), Alþjóðafjarskiptasambandinu (ITU), Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO), Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO), Alþjóðaveðurfræðistofnuninni (WMO) og Alþjóðavinnumálastofnuninni (ILO).
d. Helsinki. Auk Finnlands skal umdæmi sendiráðsins vera Eistland, Lettland, Litháen og Úkraína.
e. Kampala. Auk Úganda skal umdæmi sendiráðsins vera Eþíópía og Kenía. Sendiráðið skal gegna hlutverki sendiskrifstofu gagnvart Afríkusambandinu (AU) í Addis Ababa.
f. Kaupmannahöfn. Auk Danmerkur skal umdæmi sendiráðsins vera Búlgaría, Rúmenía og Tyrkland.
g. Lilongwe. Umdæmi sendiráðsins skal vera Malaví.
h. London. Auk Bretlands skal umdæmi sendiráðsins vera Írland, Jórdanía, Katar og Malta. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO).
i. Moskva. Auk Rússlands skal umdæmi sendiráðsins vera Armenía, Aserbaísjan, Belarús, Kasakstan, Kirgistan, Moldóva, Tadsíkistan, Túrkmenistan og Úsbekistan.
j. Nýja-Delí. Auk Indlands skal umdæmi sendiráðsins vera Bangladess, Nepal og Srí Lanka.
k. Ottawa. Auk Kanada skal umdæmi sendiráðsins vera Bólivía, Kosta Ríka, Hondúras, Kólumbía, Panama og Venesúela.
l. Ósló. Auk Noregs skal umdæmi sendiráðsins vera Egyptaland, Grikkland, Íran og Pakistan.
m. París. Auk Frakklands skal umdæmi sendiráðsins vera Alsír, Andorra, Ítalía, Líbanon, Marokkó, Mónakó, Portúgal, Spánn og Túnis. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) í París og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í París.
n. Peking. Auk Kína skal umdæmi sendiráðsins vera Kambódía, Laos, Mongólía, Norður-Kórea, Suður-Kórea, Taíland og Víetnam.
o. Stokkhólmur. Auk Svíþjóðar skal umdæmi sendiráðsins vera Albanía, Kúveit og Kýpur.
p. Tókýó. Auk Japans skal umdæmi sendiráðsins vera Brúnei, Filippseyjar, Indónesía og Tímor-Leste.
q. Washington. Auk Bandaríkjanna skal umdæmi sendiráðsins vera Mexíkó, Paragvæ og Úrúgvæ.
3. Fyrirsvar fastanefnda skal vera sem hér segir:
a. Brussel. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Atlantshafsbandalaginu (NATO) og stofnunum tengdum því.
b. New York. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Sameinuðu þjóðunum (UN) í New York. Jafnframt skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs og skal umdæmi þess vera Antígva og Barbúda, Bahamaeyjar, Barbados, Belís, Dóminíka, Dóminíska lýðveldið, Grenada, Gvæjana, Haítí, Jamaíka, Kúba, Sankti Kitts og Nevis, Sankti Lúsía, Sankti Vinsent og Grenadínur, Súrínam og Trínidad og Tóbagó.
c. Róm. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Alþjóðasjóði um þróun landbúnaðar (IFAD).
d. Strassborg. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Evrópuráðinu (CoE).
e. Vín. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (OSCE), skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vín (UNOV), Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA) og skrifstofu samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (CTBTO).
4. Umdæmi aðalræðisskrifstofa skal vera sem hér segir:
a. New York. Auk New York-ríkis skal umdæmi aðalræðisskrifstofunnar vera ríkin Connecticut, New Jersey og Rhode Island.
b. Nuuk. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera Grænland.
c. Winnipeg. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera fylkið Manitoba, fylkið Saskatchewan, að undanskilinni borginni Regina, og fylkið Alberta, að undanskildum borgunum Calgary og Edmonton.
d. Þórshöfn. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera Færeyjar.
5. Utanríkisráðuneytið fer með fyrirsvar gagnvart öðrum alþjóðastofnunum og ríkjum sem Ísland hefur stjórnmálasamband við, m.a. með skipun sendiherra eða fastafulltrúa með búsetu í Reykjavík eftir því sem ástæða er til.
Úrskurður þessi öðlast þegar gildi. …