Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2026. Útgáfa 158a. Prenta í tveimur dálkum.
Forsetaúrskurður um skiptingu starfa ráðherra
2025 nr. 6 14. mars
Tók gildi 15. mars 2025. Breytt með: Forsetaúrskurði nr. 9/2025 (tók gildi 24. mars 2025). Forsetaúrskurði nr. 84/2025 (tók gildi 13. des. 2025). Forsetaúrskurði nr. 87/2025 (tók gildi 21. des. 2025). Forsetaúrskurði nr. 2/2026 (tók gildi 12. jan. 2026). Forsetaúrskurði nr. 4/2026 (tók gildi 17. jan. 2026). Forsetaúrskurði nr. 24/2026 (tók gildi 27. mars 2026). Forsetaúrskurði nr. 32/2026 (tók gildi 18. apríl 2026).
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til
15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands og forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti er störfum þannig skipt með ráðherrum:
1. gr.
Forsætisráðherra.
Kristrún Frostadóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir forsætisráðuneytið skv. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
forsætisráðherra.
2. gr.
Atvinnuvegaráðherra.
Hanna Katrín Friðriksson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvegaráðuneytið skv. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
atvinnuvegaráðherra.
3. gr.
Dómsmálaráðherra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir dómsmálaráðuneytið skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
dómsmálaráðherra.
4. gr. [
Félags- og húsnæðismálaráðherra.
Ragnar Þór Ingólfsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið skv. 4. gr., að undanskildum c-lið 3. tölul., forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
félags- og húsnæðismálaráðherra.]
1)
1)Forsetaúrskurður nr. 4/2026, 1. gr.
5. gr.
Fjármála- og efnahagsráðherra.
Daði Már Kristófersson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið skv. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
fjármála- og efnahagsráðherra.
6. gr.
Heilbrigðisráðherra.
Alma D. Möller fer með stjórnarmálefni sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið skv. 6. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
heilbrigðisráðherra.
7. gr.
Innviðaráðherra.
Eyjólfur Ármannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir innviðaráðuneytið skv. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
innviðaráðherra.
8. gr.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Logi Einarsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið skv. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
9. gr. [
Mennta- og barnamálaráðherra.
Inga Sæland fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið skv. c-lið 3. tölul. 4. gr. og mennta- og barnamálaráðuneytið skv. 9. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
mennta- og barnamálaráðherra.]
1)
1)Forsetaúrskurður nr. 4/2026, 2. gr.
10. gr.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Jóhann Páll Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið skv. 10. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
11. gr.
Utanríkisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir utanríkisráðuneytið skv. 11. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið
utanríkisráðherra.
12. gr.

Úrskurður þessi öðlast gildi 15. mars 2025.
…
[Ákvæði til bráðabirgða.
I.

…
1)]
2)
1)Forsetaúrskurður nr. 87/2025, 3. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 84/2025, 1. gr.
[II.

…
1)]
2)
1)Forsetaúrskurður nr. 4/2026, 3. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 87/2025, 1. gr.
[III.

…
1)]
2)
1)Forsetaúrskurður nr. 2/2026, 3. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 87/2025, 2. gr.
[IV.

…
1)]
2)
1)Forsetaúrskurður nr. 32/2026, 1. gr. 2)Forsetaúrskurður nr. 24/2026, 1. gr.