Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2012. Útgáfa 140a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk þeirra
1931 nr. 36 8. september
Tóku gildi 1. janúar 1932.Breytt meðl. 141/1998 (tóku gildi 1. jan. 1999).
1. gr. [Þjónandi prestar og prófastar skulu fá greiddan rekstrarkostnað embætta sinna frá biskupsstofu samkvæmt reglum1) sem kirkjuþing setur.]2) 1)Augl. 819/1999, sbr. 852/2001 og 291/2004. 2)L. 141/1998, 1. gr. 2. gr. Ráðuneytið leggur sóknarprestinum til löggiltar embættisbækur, svo og eyðublöð undir lögboðnar skýrslur og embættisvottorð. 3. gr. Fyrir aukaverk ber prestum þóknun eftir gjaldskrá, er ráðuneytið setur til 10 ára í senn.