Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2012. Útgáfa 140a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um neytendalán
1994 nr. 121 21. september
Upphaflega l. 30/1993. Tóku gildi 1. október 1993. Endurútgefin, sbr. 15. gr. l. 101/1994, sem l. 121/1994.Breytt meðl. 179/2000 (tóku gildi 11. jan. 2001; EES-samningurinn: tilskipun 87/102/EBE), l. 62/2005 (tóku gildi 1. júlí 2005), l. 34/2007 (tóku gildi 30. mars 2007), l. 63/2008 (tóku gildi 12. júní 2008), l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
III. kafli.Greiðsla fyrir gjalddaga. 16. gr. Neytanda skal heimilt að standa skil á skuldbindingum sínum samkvæmt lánssamningi fyrir þann tíma sem umsaminn er. Notfæri neytandi sér heimild þessa á hann rétt á lækkun á heildarlántökukostnaði sem nemur þeim vöxtum og öðrum gjöldum sem greiða átti eftir greiðsludag. Ekki er hægt að krefjast endurgreiðslu eða lækkunar á gjöldum sem eru óháð því hvenær greiðsla er innt af hendi. Ákvæði 1. mgr. á ekki við um greiðslu sem innt er af hendi fyrir gjalddaga þegar hún tengist ekki uppgreiðslu láns fyrir umsaminn lokagjalddaga eða annarri breytingu á umsömdum afborgunum láns. [16. gr. a. Lánveitanda er óheimilt að krefjast greiðslu uppgreiðslugjalds af láni í íslenskum krónum með breytilegum vöxtum sem greitt er upp fyrir þann tíma sem umsaminn er, ef upphaflegur höfuðstóll lánsins er að jafnvirði 50 millj. kr. eða minna. Lánveitandi getur ekki krafist uppgreiðslugjalds ef ástæða uppgreiðslu er gjaldfelling láns af hans hálfu. Í þeim tilvikum sem heimilt er að semja um uppgreiðslugjald skal kveðið á um slíkt í lánssamningi. Tilgreina skal upplýsingar um hvernig uppgreiðslugjald er reiknað út og hvenær slíkur kostnaður fellur á. Í þeim tilvikum sem heimilt er að semja um uppgreiðslugjald má fjárhæð gjaldsins að hámarki vera það tjón sem lánveitandi verður fyrir vegna uppgreiðslunnar fyrir þann tíma sem umsaminn er. Ef kveðið er á um heimild til endurskoðunar vaxta í lánssamningi með föstum vöxtum skal miða útreikning uppgreiðslugjalds við tímann fram að næsta endurskoðunardegi vaxta. Ráðherra skal setja nánari reglur um útreikning á tjóni vegna uppgreiðslu.]1) 1)L. 63/2008, 3. gr.
IV. kafli.Framsal kröfuréttinda. 17. gr. Ef lánveitandi framselur kröfurétt sinn samkvæmt láni sem veitt er samkvæmt lögum þessum til þriðja aðila getur neytandi haldið uppi sömu mótbárum við hann og upphaflegan eiganda kröfunnar. Sama á við ef kröfuhafi hefur sett kröfuna að veði eða fjárnám hefur verið gert í henni. Þetta á þó ekki við ef neytandi innir greiðslu af hendi til lánveitanda og veit eða má vita að lánveitandi hefur ekki rétt til að taka við greiðslu eða gera samning þar að lútandi. Ef neytandi á kröfu á hendur lánveitanda, sem jafnframt er seljandi, vegna kaupa, t.d. vegna galla, er framsalshafi meðábyrgur lánveitanda. Ákvæði þetta nær þó ekki til viðskiptabréfakrafna enda sé til staðar trygging, sbr. 18. gr. 18. gr. Seljandi, sem veitir neytanda lán samkvæmt lögum þessum í formi viðskiptabréfs, skal taka tryggingu vegna hugsanlegrar vanefndakröfu neytanda vegna þeirra viðskipta sem að baki viðskiptabréfi standa. Tryggingarfjárhæð innan hvers tryggingartímabils, sem er eitt ár, skal nema 5.000.000 kr. [Neytandi skal gera kröfu um greiðslu tryggingarfjár innan tveggja ára frá afhendingu vöru eða þjónustu, eða innan fimm ára þegar um ræðir söluhlut sem ætlaður er verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti frá því að honum var veitt viðtaka.]1) Séu kröfuhafar fleiri en einn fer um rétt þeirra til tryggingarfjárins eftir röð krefjenda. Að gengnum fullnaðardómi eða að gerðri réttarsátt um vanefnd og þegar ljóst er að seljandi getur ekki efnt skyldu sína samkvæmt dóminum eða sáttinni skal neytanda greitt af tryggingarfénu. Ráðherra skal setja nánari ákvæði um tryggingarskylduna, gildissvið tryggingarinnar, hverjir veitt geti tryggingu og skilmála í reglugerð. Í henni má einnig kveða á um lægri tryggingarfjárhæð en greinir í 2. mgr. þegar umfang viðskipta er það takmarkað að lægri tryggingarfjárhæð veitir nægjanlega vernd. Nú hefur seljandi ekki gilda tryggingu samkvæmt grein þessari og getur kaupandi þá borið fram mótbárur svo sem bréfið væri ekki viðskiptabréf. 1)L. 63/2008, 4. gr.
V. kafli.Kaup með eignarréttarfyrirvara og endurheimt eignarréttar. 19. gr. Ef söluhlutur er seldur með eignarréttarfyrirvara getur lánveitandi endurheimt hlutinn á grundvelli skriflegs kaupsamnings þar sem skýrt er kveðið á um eignarréttarfyrirvarann. Skilyrði endurheimtunnar er að neytandi sé í vanskilum með afborganir eða lánskostnað. Þegar söluhlutur er endurheimtur skal við uppgjör á milli aðila lánssamnings reyna að komast sem næst því að þeir verði jafnsettir og ef viðskiptin hefðu ekki átt sér stað. Ef andvirði söluhlutar er meira en sem nemur eftirstöðvum lánssamnings skal lánveitandi endurgreiða neytanda mismuninn. Ef andvirði söluhlutar er minna skal neytandi endurgreiða lánveitanda mismuninn. Við mat á andvirði söluhlutar skal litið til þess hvort slit og rýrnun söluhlutar er eðlilegt og til frádráttar vaxta frá endurheimtudegi til loka lánssamnings. Komi upp ágreiningur um hvað sé verð söluhlutar á almennum markaði skal hann útkljáður með matsgerð tveggja dómkvaddra og óhlutdrægra manna. Matsmenn skulu ákveða hvernig háttað skuli greiðslu vegna kostnaðar við matið. 20. gr. Nú hafa fleiri en einn hlutur verið keyptir samkvæmt einum samningi og lánveitandi leggur fram kröfu um endurheimt þeirra. Getur neytandi þá valið einn eða fleiri hlutanna til afhendingar gegn því að greiða um leið mismun andvirðis þeirra hluta sem hann heldur eftir. Ef inneign lánveitanda er minni en andvirðið á neytandi rétt á að fá mismuninn greiddan um leið og hlutirnir eru afhentir. Neytandi getur ekki leyst til sín hlut ef hann er úr safni eða samstæðu sem lánveitandi hefur einnig endurheimt frá neytanda og aðskilnaðurinn hefur í för með sér verulega rýrnun á verðmæti hlutanna.
VI. kafli.Ýmis ákvæði. 21. gr. [Ráðherra]1) fer með framkvæmd laga þessara. Honum er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd þeirra með reglugerð.2) 1)L. 126/2011, 199. gr.2)Rg. 377/1993, sbr. 491/1993 og 236/2000. 22. gr. [Ráðherra]1) getur sett reglur2) um hvernig prenta skuli leiðbeiningar um réttarstöðu neytanda á skriflega samninga og skjöl sem lögin taka til. 1)L. 126/2011, 199. gr.2)Rg. 377/1993, sbr. 491/1993 og 236/2000. 23. gr. [Ráðherra]1) getur breytt fjárhæðum í lögum þessum eftir því sem verðlagsþróun gefur tilefni til. 1)L. 126/2011, 199. gr. 24. gr. Eigi má með samningi víkja frá ákvæðum laga þessara né reglugerða, sem settar kunna að verða samkvæmt lögunum, neytanda í óhag.
VII. kafli.Bótaskylda, eftirlit og gildistaka. 25. gr. [Neytendastofa]1) annast eftirlit með ákvæðum laga þessara. [Ákvæði laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins gilda um úrræði Neytendastofu og málsmeðferð.]2) [Ákvörðunum sem Neytendastofa tekur á grundvelli laga þessara verður skotið til áfrýjunarnefndar neytendamála sem starfar á grundvelli 4. gr. laga um Neytendastofu og talsmann neytenda að undanskildum ákvörðunum um dagsektir. Ákvörðun Neytendastofu verður ekki borin undir dómstóla fyrr en úrskurður áfrýjunarnefndar neytendamála liggur fyrir. Nú vill aðili ekki una úrskurði áfrýjunarnefndar og getur hann þá höfðað mál til ógildingar fyrir dómstólum. Mál skal höfðað innan sex mánaða frá því að aðili fékk vitneskju um úrskurð áfrýjunarnefndarinnar. Málshöfðun frestar ekki gildistöku úrskurðar nefndarinnar né heimild til aðfarar.]2) 1)L. 62/2005, 13. gr.2)L. 34/2007, 2. gr. 26. gr. [Neytendastofa]1) getur bannað athafnir sem brjóta í bága við ákvæði laga þessara. Banni má fylgja ákvörðun um dagsektir sem kemur til framkvæmda ef bannið er brotið. Dagsektir geta numið frá 10.000 kr. til 100.000 kr. á dag. Áður en til banns kemur skv. 1. mgr. getur [Neytendastofa]1) lokið málinu með sátt. Hafi sátt komist á gildir hún sem bann skv. 1. mgr. 1)L. 62/2005, 13. gr. 27. gr. Brot á lögum þessum getur valdið skaðabótaskyldu í samræmi við almennar reglur skaðabótaréttar. Gera má lögaðila að greiða bætur þó svo að sök sannist ekki á neinn tiltekinn starfsmann lögaðilans ef sýnt þykir að einhver starfsmaður lögaðilans hafi gerst brotlegur við ákvæði laga þessara. Bætur, sem dæmdar verða, sbr. 1. mgr., má innheimta hjá þeim einstaklingi sem dæmdur er bótaskyldur eða lögaðila þeim sem hann starfaði hjá þegar brotið var framið. [28. gr. Lög þessi eru sett í samræmi við ákvæði í XIX. viðauka EES-samningsins, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, og til þess að taka upp í innlendan rétt ákvæði tilskipunar ráðsins nr. 102 frá 22. desember 1986, um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi neytendalán, ásamt síðari breytingum.]1) 1)L. 179/2000, 4. gr.