Tóku gildi 30. mars 1999.EES-samningurinn: XVIII. viðauki tilskipun 75/129/EBE og 77/187/EBE, XXII. viðauki tilskipun 78/660/EBE og XVIII. viðauki tilskipun 94/45/EB.
I. kafli.Markmið og gildissvið. 1. gr.Markmið laganna. Markmið laga þessara er að bæta rétt starfsmanna til upplýsinga og samráðs í fyrirtækjum eða fyrirtækjasamstæðum er starfa í a.m.k. tveimur ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Skal í þeim tilgangi stofna evrópskt samstarfsráð, hér eftir nefnt samstarfsráð, með fulltrúum starfsmanna eða setja reglur í hverju fyrirtæki og hverri fyrirtækjasamstæðu um upplýsingamiðlun og samráð eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum þessum. 2. gr.Gildissvið. Lög þessi taka til fyrirtækja og fyrirtækjasamstæðna, sbr. 3. og 4. gr. Þegar aðalstjórn fyrirtækis, sbr. 7. gr., er hér á landi taka lög þessi enn fremur til erlendra dótturfyrirtækja og starfsstöðva að undantekinni 8. gr., 3. og 4. mgr. 11. gr., 2. og 3. mgr. 21. gr. og 34.–35. gr.
IV. kafli.Ákvæði til vara. 19. gr.Skylda til stofnunar samstarfsráðs. Samstarfsráð skal stofnað samkvæmt ákvæðum þessa kafla:
1. ef aðalstjórn og samningaráðið ákveða það, 2. ef aðalstjórn hefur ekki hafið samningaumleitanir innan sex mánaða eftir að beiðni frá starfsmönnum hefur borist um það skv. 10. gr., 3. ef aðilar hafa ekki komið sér saman um samning þann sem tilgreindur er í 14. eða 15. gr. innan þriggja ára frá þeim tíma þegar beiðni um það barst upphaflega, sbr. 10. gr., og samningaráðið hefur ekki áður tekið ákvörðun skv. 16. gr. 20. gr.Valdsvið. Valdsvið samstarfsráðs takmarkast við upplýsingamiðlun og samráð um málefni sem varða:
1. fyrirtæki, sbr. 3. gr., sem eina heild, 2. fyrirtækjasamstæðu, sbr. 4. gr., sem eina heild eða 3. a.m.k. tvær starfsstöðvar fyrirtækis eða fyrirtækjasamstæðu í a.m.k. tveimur EES-ríkjum. Þegar um er að ræða fyrirtæki eða fyrirtækjasamstæður sem falla undir 3. mgr. 7. gr. takmarkast valdsvið samstarfsráðs við málefni sem varða allar starfsstöðvar þess eða fyrirtæki í EES-ríkjum eða a.m.k. tvær starfsstöðvar þess eða fyrirtæki sem eru í mismunandi EES-ríkjum. 21. gr.Val fulltrúa í samstarfsráð. Í samstarfsráði skulu sitja minnst þrír en mest þrjátíu fulltrúar. Fulltrúar starfsmanna kjósa fulltrúa í ráðið úr sínum hópi. Ef því verður ekki við komið skulu allir starfsmennirnir kjósa um þá. Fulltrúar í samstarfsráðið, sem kosnir eru á Íslandi, skulu kosnir úr hópi starfsmanna af trúnaðarmönnum innan fyrirtækis. Séu ekki trúnaðarmenn innan fyrirtækis eiga allir starfsmenn fyrirtækis eða starfsstöðvar rétt á að taka þátt á kjöri fulltrúa í samstarfsráðið. Starfsmenn sem stöðu sinnar vegna eiga ekki trúnaðarmann eiga rétt á að velja sér fulltrúa sem skal taka þátt í kjöri fulltrúa í samstarfsráðið. Samstarfsráðið skal þannig skipað:
1. Einn fulltrúi starfsmanna frá hverju ríki þar sem fyrirtækið eða fyrirtækjasamstæðan rekur eitt eða fleiri fyrirtæki eða starfsstöðvar, sbr. þó 2. og 3. tölul. 2. Ef fyrirtækið eða fyrirtækjasamstæðan hefur færri en 2.000 starfsmenn og á fyrirtæki eða starfsstöðvar í aðeins tveimur ríkjum skal auk þess tilnefndur einn fulltrúi starfsmanna í því ríki þar sem starfsmenn eru flestir. 3. Ef fyrirtækið eða fyrirtækjasamstæðan hefur 2.000 eða fleiri starfsmenn skulu enn fremur tilnefndir:
a. einn fulltrúi starfsmanna í ríkjum þar sem a.m.k. 25% starfsmanna fyrirtækisins eða fyrirtækjasamstæðunnar starfa og b. tveir fulltrúar starfsmanna í ríkjum þar sem fleiri en 50% starfsmanna fyrirtækisins eða fyrirtækjasamstæðunnar starfa eða c. þrír fulltrúar starfsmanna í ríkjum þar sem fleiri en 75% starfsmanna fyrirtækisins eða fyrirtækjasamstæðunnar starfa. Séu fulltrúar, sem kosnir hafa verið skv. 1.–3. tölul. 4. mgr., fleiri en þrjátíu skal þeim fulltrúum fækkað sem kosnir hafa verið skv. 3. tölul. 4. mgr. Skal þá fyrst fækkað fulltrúum skv. a-lið, síðan skv. b-lið og að síðustu skv. c-lið. Aðalstjórn eða einhverju öðru hlutaðeigandi stjórnunarstigi innan fyrirtækis eða fyrirtækjasamstæðu skal tilkynnt um hverjir skipa samstarfsráðið. Ef samstarfsráðið er skipað fleiri en tíu fulltrúum, eða ef samkomulag er um það við aðalstjórn, kýs samstarfsráðið úr sínum hópi framkvæmdanefnd sem skal skipuð mest þremur fulltrúum. Framkvæmdanefndin setur sér starfsreglur. 22. gr.Endurskoðun. Annað hvert ár eftir stofnun samstarfsráðs skal aðalstjórn reikna út fjölda fulltrúa fyrir hvert ríki og gefa ráðinu upplýsingar um niðurstöðu sína. Ef niðurstaðan kallar á breytingu á fjölda fulltrúa sem skipaðir hafa verið skv. 4. og 5. mgr. 21. gr. skal fulltrúum í ráðinu fækkað eða fjölgað eftir því sem við á. Fjórum árum eftir að samstarfsráð hefur verið stofnað samkvæmt ákvæðum í þessum kafla ber ráðinu að ræða hver þörfin er fyrir að hefja viðræður í því skyni að gera samning skv. 14. eða 15. gr. eða hvort halda beri áfram starfi samstarfsráðsins á sama grundvelli og áður. Ef aðilar ákveða að gera samning skv. 14. og 15. gr. skal samstarfsráðið gegna því hlutverki sem samningaráði væri að öðrum kosti falið. 23. gr.Reglulegir fundir. Samstarfsráð hefur rétt til þess að eiga fund með aðalstjórn einu sinni á ári til upplýsingar og samráðs. Fyrir fundinn skal aðalstjórn útbúa skýrslu um rekstur og rekstrarhorfur fyrirtækisins sem lögð skal til grundvallar fundinum. Á fundi skv. 1. mgr. skal einkum fjallað um uppbyggingu fyrirtækisins eða fyrirtækjasamstæðunnar, efnahags- og fjárhagslega stöðu, líklega þróun hvað varðar rekstur, framleiðslu og sölu, ástand og horfur í atvinnumálum, fjárfestingar og umtalsverðar breytingar á skipulagi fyrirtækisins eða fyrirtækjasamstæðunnar, tilkomu nýrra starfsaðferða eða framleiðsluaðferða, flutning framleiðslu, samruna fyrirtækja, niðurskurð eða lokun fyrirtækja, starfsstöðva eða annarra mikilvægra hluta þeirra og hópuppsagnir. 24. gr.Aukafundir. Ef fyrir hendi eru sérstakar aðstæður sem hafa umtalsverð áhrif á hagsmuni starfsmanna, einkum vegna flutnings, lokunar starfsstöðva eða fyrirtækja eða hópuppsagna, á framkvæmdanefndin eða, hafi hún ekki verið stofnuð, samstarfsráðið rétt á að fá upplýsingar um þessar sérstöku aðstæður. Framkvæmdanefndin eða, hafi hún ekki verið stofnuð, samstarfsráðið hefur eftir að hafa sent frá sér beiðni þess efnis rétt til að sitja fund með aðalstjórn fyrirtækis eða einhverju öðru hlutaðeigandi stjórnunarstigi í fyrirtækinu eða fyrirtækjasamstæðunni í því skyni að fá upplýsingar og hafa samráð um mikilvægar ráðstafanir sem hafa umtalsverð áhrif á hagsmuni starfsmanna. Fulltrúar í samstarfsráðinu, sem kosnir hafa verið í fyrirtækjum eða starfsstöðvum sem viðkomandi ráðstafanir hafa bein áhrif á, sbr. 1. mgr., eiga rétt á að sitja fund framkvæmdanefndar sem ráðgerður er skv. 2. mgr. Fundur skv. 2. mgr. skal haldinn svo skjótt sem við verður komið á grundvelli skýrslu aðalstjórnar eða annars hlutaðeigandi stjórnunarstigs. Framkvæmdanefndinni eða samstarfsráðinu er heimilt að leggja fram álit á skýrslunni í fundarlok eða innan hæfilegs frests. Fundur skv. 2. mgr. hefur ekki áhrif á heimildir aðalstjórnar. Ef skammt er til árlegs fundar skv. 23. gr. er heimilt að fresta umræðum um málefni sem annars yrði fjallað um á aukafundi ef ljóst þykir að frestur af þeim sökum hafi ekki áhrif á samráðsferlið. 25. gr.Undirbúningsfundur. Áður en fundur er haldinn með aðalstjórn er samstarfsráðinu eða framkvæmdanefndinni, með þeirri víðtækari skipan sem heimiluð er skv. 3. mgr. 24. gr., heimilt að halda fund án nærveru stjórnarinnar. 26. gr.Upplýsingagjöf. Fulltrúar í samstarfsráði skulu greina fulltrúum starfsmanna fyrirtækisins eða, ef slíkir fulltrúar eru ekki fyrir hendi, öllum starfsmönnum fyrirtækisins frá efni upplýsinga og samráði sem farið hefur fram í samræmi við ákvæði þessa kafla, sbr. þó 29. gr. 27. gr.Sérfræðingar. Samstarfsráðið eða framkvæmdanefndin getur kallað til sérfræðinga að eigin vali ef slíkt reynist nauðsynlegt vegna starfsemi ráðsins. Kostnaður aðalstjórnar, sbr. 28. gr., takmarkast þó við störf eins sérfræðings. 28. gr.Kostnaður. Aðalstjórn greiðir kostnað samstarfsráðsins. Aðalstjórn ber að tryggja fulltrúum í samstarfsráðinu það fjármagn og þá aðstöðu sem þeim er nauðsynleg til að sinna skyldum sínum. Aðalstjórn ber að tryggja að fulltrúar í samstarfsráðinu verði ekki fyrir launamissi vegna þátttöku sinnar í starfi ráðsins. Einkum skal aðalstjórn greiða kostnað af skipulagi funda og aðstöðu vegna túlkunar og gisti- og ferðakostnað fulltrúa samstarfsráðsins og framkvæmdanefndar hennar nema um annað sé samið.
V. kafli.Sameiginleg ákvæði. 29. gr.Þagnarskylda. Aðalstjórn er heimilt að leggja þagnarskyldu á fulltrúa í samningaráðinu, samstarfsráðinu og framkvæmdanefndinni, fulltrúa starfsmanna skv. 15. gr. og þá sérfræðinga sem til eru kvaddir þeim til aðstoðar. Aðalstjórn skal tiltaka sérstaklega þær upplýsingar sem þagnarskylda lýtur að. Þagnarskyldan helst þótt umboð þeirra sem heyra undir 1. mgr. falli niður. 30. gr.Undanþága frá upplýsingaskyldu. Aðalstjórn er heimilt að láta hjá líða að veita fulltrúum í samningaráðinu, samstarfsráðinu og framkvæmdanefndinni eða fulltrúum starfsmanna skv. 15. gr. upplýsingar ef þær eru samkvæmt hlutlægu mati þess eðlis að þær geti haft skaðleg áhrif á starfsemi hlutaðeigandi fyrirtækja eða verið þeim skaðlegar. 31. gr.Réttarstaða. Fulltrúar í samningaráðinu, samstarfsráðinu eða fulltrúar starfsmanna skv. 15. gr. skulu hvorki sæta uppsögn né skerðingu á kjörum sínum vegna starfa sinna. Skulu fulltrúar starfsmanna njóta sams konar réttarverndar og trúnaðarmenn samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Fulltrúum starfsmanna skal tryggður réttur með samningi við vinnuveitanda til að taka sér frí frá störfum svo að þeir geti á eðlilegan hátt sinnt skyldum sínum við gerð og framkvæmd samninga samkvæmt lögum þessum. 32. gr.Ágreiningur. Ágreiningur, sem kann að rísa um gerð eða framkvæmd samnings sem gerður er á grundvelli laga þessara, verður borinn undir almenna dómstóla. 33. gr.Reglugerð. Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði í reglugerð um kosningu íslenskra fulltrúa í samningaráðið og samstarfsráðið.
VI. kafli.Viðurlög. 34. gr.Upplýsingar til þriðja aðila. Þeir sem þrátt fyrir þagnarskyldu skv. 29. gr. láta þriðja aðila í té upplýsingar sem þeim hafa verið veittar skulu dæmdir til fésekta nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. 35. gr.Viðurlög. Brot á 9. gr., 1. mgr. 10. gr., 1. mgr. 11. gr., 19. gr., 23. gr. og 1.–2. mgr. 24. gr. varða fésektum.
VII. kafli.Ýmis ákvæði. 36. gr.13. gr. samningar. Lög þessi taka ekki til fyrirtækja og fyrirtækjasamstæðna sem eiga aðild að samkomulagi um upplýsingagjöf og samráð á grundvelli 13. gr. tilskipunar nr. 94/45/EB. Skilyrði er að samkomulag aðila hafi öðlast gildi í síðasta lagi 21. september 1996 og að það nái til allra starfsmanna hlutaðeigandi fyrirtækis eða fyrirtækjasamstæðu og snerti upplýsingagjöf og samráð um málefni fyrirtækja í tveimur eða fleiri ríkjum. Ef samkomulag, sbr. 1. mgr., fellur úr gildi er aðilum heimilt að framlengja það. Að öðrum kosti fer um samskipti aðila samkvæmt lögum þessum. 37. gr.Gildistaka. Lög þessi öðlast þegar gildi.