Tóku gildi 1. janúar 2010.Breytt meðl. 165/2010 (tóku gildi og komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 69. gr.), l. 73/2011 (tóku gildi 28. júní 2011 nema 2. og 5. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2012; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 13. gr.) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
II. kafli.[Umsóknarferli o.fl.]1) 1)L. 165/2010, 51. gr. 4. gr.Umsóknir til Rannís. [Umsókn um staðfestingu á rannsóknar- eða þróunarverkefni skal berast Rannís eigi síðar en 1. september ár hvert. Umsókn skal afhent á því formi sem Rannís ákveður. Með umsókn skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu ásamt verk- og kostnaðaráætlun.]1) 1)L. 165/2010, 45. gr. 5. gr.[Staðfesting verkefna.]1) [Rannís ákvarðar hvort verkefni hlýtur staðfestingu samkvæmt lögum þessum. Skilyrði þess að verkefni hljóti staðfestingu er að það teljist rannsóknar- eða þróunarverkefni samkvæmt lögum þessum og einnig]:1) 1. að hugmynd að virðisaukandi vöru/þjónustu og viðskiptaáætlun sé vel skilgreind, og 2. að sýnt sé fram á með gögnum að varið verði a.m.k. [1 millj. kr.]1) til rannsókna og þróunar á 12 mánaða tímabili, og 3. starfsmenn hafi þjálfun, menntun eða reynslu á því sviði sem hugmynd að virðisaukandi vöru eða þjónustu byggist á. …1) 1)L. 165/2010, 46. gr. 6. gr.…1) [Ef nýsköpunarfyrirtæki kaupir rannsóknar- eða þróunarvinnu af ótengdu fyrirtæki, háskóla eða stofnun til nota í eigin staðfestu rannsóknar- eða þróunarverkefni hækkar hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti skv. 10. gr.]1) 1)L. 165/2010, 47. gr. 7. gr.Samstarfsverkefni. [Tvö eða fleiri ótengd nýsköpunarfyrirtæki geta staðið saman að verkefni og notið frádráttar skv. 10. gr. Í tilviki samstarfsverkefnis skulu upplýsingar um alla þátttakendur koma fram í umsókn skv. 4. gr. ásamt upplýsingum um áætlaða hlutdeild hvers og eins í rannsóknar- og þróunarkostnaði.]1) 1)L. 165/2010, 48. gr. 8. gr.Málsmeðferð. [Við mat Rannís á rannsóknar- og þróunarverkefnum má leita til ráðgefandi fagnefndar sem skipuð er þremur fulltrúum með reynslu af málefnum tengdum nýsköpun. [Ráðherra er fer með fjárreiður ríkisins og ráðherra er fer með málefni atvinnuþróunar og nýsköpunar]1) og Samtök atvinnulífsins tilnefna fulltrúa í fagnefndina. Rannís skal innan tveggja mánaða frá móttöku umsóknar ákvarða hvort verkefni hlýtur staðfestingu skv. 5. gr. Tilkynna skal umsækjanda um þá ákvörðun. Rannís skal tilkynna ríkisskattstjóra um þau rannsóknar- eða þróunarverkefni sem hlotið hafa staðfestingu skv. 5. gr. og eigendur þeirra. Samstarfsverkefni skulu aðgreind sérstaklega og upplýst um alla þátttakendur í þeim.]2) …2) Um meðferð umsókna hjá Rannís fer eftir lögum þessum og öðrum lögum sem um stofnunina gilda. Ákvarðanir Rannís samkvæmt lögum þessum eru endanlegar á stjórnsýslustigi. 1)L. 126/2011, 519. gr.2)L. 165/2010, 49. gr. 9. gr.Gildistími staðfestingar. Staðfesting Rannís skv. 5. …1) gr. skal miðast við umsóknarár og gildir fyrir það almanaksár. Umsókn um framlengingu staðfestingar skal lögð fram árlega eigi síðar en 1. apríl. Rannís skal taka umsókn um framlengingu til afgreiðslu innan tveggja mánaða frá móttöku hennar. Fallist Rannís á framlengingu gildir staðfestingin fyrir það ár. 1)L. 165/2010, 50. gr.
IV. kafli.Ýmis ákvæði. 16. gr.Reglugerðarheimild. Ráðherra er heimilt með reglugerð1) að mæla nánar fyrir um framkvæmd laga þessara. 1)Rg. 758/2011. 17. gr.Gildistaka. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2010 og koma til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2011 vegna tekjuársins 2010. Lögin skulu koma til endurskoðunar innan tveggja ára frá gildistöku þeirra. [Lögin falla úr gildi 31. desember 2014. Stuðningur sem samþykktur hefur verið fyrir það tímamark heldur þó gildi sínu.]1) 1)L. 73/2011, 10. gr.