146. löggjafarþing — 55. fundur,  5. apr. 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[17:58]
Horfa

Theodóra S. Þorsteinsdóttir (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er ekki önnur áætlun, þetta er sama áætlun. Ásetningur okkar er að hraða uppbyggingunni og setja aukna fjármuni í uppbyggingu þjóðarspítalans.

Hvað varðar hina spurninguna erum við að tala um að skilgreina þjónustuna betur. Við viljum móta stefnuna, fylgja eftir þeim markmiðum og gera þetta með skilvirkari hætti. Við tölum ekki fyrir ákveðnum upphæðum. Við tölum fyrir þeim markmiðum um hvernig þjónustan er byggð upp.