148. löggjafarþing — 20. fundur,  1. feb. 2018.

heimsókn forseta sænska þingsins.

[10:30]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að við höfum í þinghúsinu í dag góðan gest. Forseti sænska þingsins, Urban Ahlin, er staddur á þingpöllum ásamt sendinefnd sænskra þingmanna. Forseti sænska þingsins er hér í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn til Íslands í boði forseta Alþingis.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta sænska þingsins, Urban Ahlin, velkominn í Alþingishúsið og ég vænti þess að heimsókn hans til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru milli landa okkar.

Alþingi vottar forseta sænska þingsins og sænsku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]