148. löggjafarþing — 35. fundur, 6. mars 2018.
vantraust á dómsmálaráðherra.
344. mál
Herra forseti. Millidómstigið sem átti að vera svo mikil bót fyrir íslenskt réttarfar er í uppnámi vegna embættisfærslu hæstv. dómsmálaráðherra. Landsréttur glímir við vantraust og skort á trúverðugleika. Það gæti orðið svo um árabil ef ekki verður gripið í taumana.
Ég treysti hæstv. dómsmálaráðherra ekki til að halda um þá tauma og þess vegna segi ég já.