Fræðsla fyrir skóla
Í boði eru fjölbreyttar fræðsluleiðir um Alþingi sem henta öllum skólastigum. Markmiðið er að hægt sé að fræðast um Alþingi á fjölbreyttan og skemmtilegan máta. Engar tvær fræðsluleiðir eru eins og á hverju skólastigi nálgast nemendur viðfangsefnið með ólíkum hætti. Þannig geta nemendur fræðst um Alþingi út frá mismunandi áherslum og fengið nýjan fróðleik í farteskið í hvert sinn.
Fræðsla skólahópa er byggð á hæfniviðmiðum aðalnámskrár og færniþættir á borð við gagnrýna hugsun, samvinnu, tjáningu og miðlun hafðir að leiðarljósi. Einnig er stuðst við fjórðu markmiðsgrein heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, menntun fyrir alla, þar sem kveðið er á um jafnt aðgengi að menntun, fræðslu og upplýsingum.
Bæklingur um fræðsluleiðir 2023–2024