10.3.2023

Aðalmenn og varamenn taka sæti

Þórunn Sveinbjarnardóttir, Inga Sæland og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir taka sæti á ný á Alþingi mánudaginn 13. mars og víkja þá varaþingmenn þeirra, Guðmundur Andri Thorsson, Wilhelm Wessman og Friðrik Már Sigurðsson af þingi. 

Þá tekur Sigurjón Þórðarson sæti sem varaþingmaður fyrir Eyjólf Ármannsson og Eva Sjöfn Helgadóttir tekur sæti fyrir Gísla Rafn Ólafsson.