2. fundur
kjörbréfanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 24. nóvember 2021 kl. 09:42


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:42
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:42
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:42
Inga Sæland (IngS), kl. 09:42
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:42
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:42
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:42
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:42
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:42

Diljá Mist Einarsdóttir tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. 1. mgr. 17. gr. þingskapa, sbr. einnig 1. mgr. 48. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:42
Dagskrárlið frestað.

2) Rannsókn kjörbréfa Kl. 09:42
Nefndin ræddi drög að álitum og tillögum.

Gerð var grein fyrir tilkynningu landskjörstjórnar frá 22. nóvember 2021 um útgáfu kjörbréfs handa Maríu Rut Kristinsdóttur.

Björn Leví Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun sem hann kynnti undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa á 32. fundi hennar:

Í störfum sínum hefur undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa samþykkt verklagsreglur sem kveða m.a. á um að störf nefndarinnar og málsmeðferð hennar hvað viðkemur kosningakærum skuli vera í samræmi við meginreglur stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og almennar meginreglur stjórnsýsluréttar, eftir því sem við getur átt. Ekki getur talist rétt að þau sem taki að sér störf í þágu nefndarinnar fyrir hönd skrifstofu Alþingis hafi haft aðkomu að málinu á fyrri stigum. Verður því að gera athugasemd við það að starfsfólk landskjörstjórnar hafi haft svo mikla aðkomu að starfi nefndarinnar sem raun ber vitni og hafi tekið þátt í að rita hið eiginlega álit nefndarinnar. Með hliðsjón af samþykktum verklagsreglum getur ekki talist eðlilegt að sama starfsfólk starfi fyrir landskjörstjórn sem leggi til úthlutun kjörbréfa og svo undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa, sem ætlað er að rannsaka sömu kjörbréf. Slík tilhögun er til þess fallin að valda vafa um heilindi rannsóknarinnar, jafnvel þó að hið sama starfsfólk hafi innt starf af heilindum og faglegheitum. Þetta kann að vera sérstaklega athugunarvert í þeim tilfellum þar sem starfsfólk kann að hafa haft aðkomu að samskiptum við yfirkjörstjórnir eða kann að hafa veitt Landskjörstjórn ráðgjöf um hvernig skyldi taka á þeim málum er nú sæta kosningakærum.

Í tilefni af framangreindri bókun lögðu aðrir nefndarmenn eftirfarandi gagnbókun sem áheyrnarfulltrúi nefndarinnar tekur undir:

Nefndarmenn hafna því sjónarmiði sem kemur fram í bókun Björns Levís Gunnarssonar. Nefndarmenn lýsa yfir ánægju og fullu trausti á vinnuframlag starfsfólks Alþingis. Nefndarmenn árétta að allur sá texti sem fram kemur í greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa er á ábyrgð nefndarinnar og hefur texti greinargerðarinnar verið margræddur og yfirfarinn af öllum nefndarmönnum.

3) Störf nefndarinnar Kl. 10:44
Nefndin ræddi fyrirkomulag næsta fundar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:50