82. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 26. júní 2020 kl. 08:00


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 08:00
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 08:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 08:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 08:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 08:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 08:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 08:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 08:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 08:00

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:00
Dagskrálið frestað.

2) 251. mál - lax- og silungsveiði Kl. 08:10
Nefndin ræddi við Sigurð Eyþórsson frá Bændasamtökum Íslands og Jón Helga Björnsson, Elías Blöndal og Magnús Óskarsson frá Landssambandi veiðifélaga í gegnum fjarfundabúnað.

Þá mættu á fund nefndarinnar Þórður Bogason lögmaður og Víðir Smári Petersen, lögmaður. Fjölluðu þeir um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 944. mál - pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun og ríkisábyrgðir Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Sigrún Brynja Einarsdóttir og Heimir Skarphéðinsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Þórður Bogason lögmaður. Fjölluðu þau málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 714. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði landbúnaðar og matvæla vegna einföldunar regluverks og stjórnsýslu Kl. 10:10
Nefndin fjallaði um málið.

5) Önnur mál Kl. 10:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20