30. fundur
atvinnuveganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 28. febrúar 2023 kl. 09:15


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:15
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 09:15
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:15
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:15
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:15
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 09:15
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:15

Haraldur Benediktsson og Hildur Sverrisdóttir boðuðu forföll.

Nefndarritarar:
Sigrún Rósa Björnsdóttir
Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Kynning á skýrslu Ríkisendurskoðunar, Sjókvíaeldi - lagaframkvæmd, stjórnsýsla og eftirlit Kl. 09:15
Á fund nefndarinnar mættu Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi og Jakob Guðmundur Rúnarsson, Sigríður Kristjánsdóttir og Berglind Eygló Jónsdóttir frá Ríkisendurskoðun. Gestirnir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) Fundargerð Kl. 10:30
Fundargerð 29. fundar var samþykkt.

3) 596. mál - stjórn fiskveiða Kl. 10:31
Nefndin staðfesti umsagnarbeiðni sem send var út 14. febrúar 2023, skv. heimild í 2. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. bókun nefndar á 5. fundi nefndarinnar hinn 29. september sl. Þá var ákveðið að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir yrði framsögumaður nefndarinnar í málinu.

4) 540. mál - opinbert eftirlit Matvælastofnunar Kl. 10:31
Nefndin staðfesti umsagnarbeiðni sem send var út 14. febrúar 2023, skv. heimild í 2. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. bókun nefndar á 5. fundi nefndarinnar hinn 29. september sl. Þá var ákveðið að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir yrði framsögumaður nefndarinnar í málinu.

5) 536. mál - raforkulög Kl. 10:31
Nefndin staðfesti umsagnarbeiðni sem send var út 14. febrúar 2023, skv. heimild í 2. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. bókun nefndar á 5. fundi nefndarinnar hinn 29. september sl. Þá var ákveðið að Berglind Ósk Guðmundsdóttir yrði framsögumaður nefndarinnar í málinu.

6) Önnur mál Kl. 10:33
Nefndin ræddi fyrirhugaða utanferð og starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:40