52. fundur
atvinnuveganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 26. maí 2023 kl. 13:00


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 13:00
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm) 2. varaformaður, kl. 13:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG) fyrir (GRÓ), kl. 13:00
Friðjón R. Friðjónsson (FRF) fyrir Hildi Sverrisdóttur (HildS), kl. 13:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 13:00
Jódís Skúladóttir (JSkúl) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 13:00
Sigurjón Þórðarson (SigurjÞ) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 13:00
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 13:00
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 13:00

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Frestað.

2) 976. mál - veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða Kl. 13:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Svönu Helgadóttur og Ernu Jónsdóttur, Guðmund J. Óskarsson frá Hafrannsóknarstofnun og Axel Helgason frá Bátasmiðjunni ehf.

3) 914. mál - landbúnaðarstefna til ársins 2040 Kl. 14:50
Frestað.

4) 540. mál - opinbert eftirlit Matvælastofnunar Kl. 14:50
Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var
samþykkt.

Að nefndaráliti meiri hluta nefndar standa Stefán Vagn Stefánsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Teitur Björn Einarsson og Þórarinn Ingi Pétursson.

5) Önnur mál Kl. 14:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:00