51. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 24. apríl 2012 kl. 09:05


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 10:03
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 09:05
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 09:05
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 09:07
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:05
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:05
Sigmundur Ernir Rúnarsson (SER), kl. 09:05
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 09:47
Þór Saari (ÞSa), kl. 09:05

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 12:05
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 657. mál - stjórn fiskveiða Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar komu Arnór Snæbjörnsson, Huginn Freyr Þorsteinsson, Valdimar Halldórsson og Hrefna Karlsdóttir frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Gestirnir svöruðu spurningum nefndarmanna um efni einstakra ákvæða þingmálsins.
Á fund nefndarinnar komu Sigurður Jónsson, Flosi Eiríksson og Ólafur M. Ólafsson frá KPMG ehf. og Daníel Svavarsson, Hallgrímur Ásgeirsson og Björn Pétursson frá Landsbankanum. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) 658. mál - veiðigjöld Kl. 10:08
Á fund nefndarinnar komu Sigurður Jónsson, Flosi Eiríksson og Ólafur M. Ólafsson frá KPMG ehf. og Daníel Svavarsson, Hallgrímur Ásgeirsson og Björn Pétursson frá Landsbankanum. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

4) Önnur mál. Kl. 12:07
ÞSa, BVG og SIJ yfirgáfu fundinn kl. 11:36 vegna fundar þingflokksformanna.
SER yfirgaf fundinn kl. 11:44.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.


Fundi slitið kl. 12:07