18. fundur
atvinnuveganefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 22. nóvember 2012 kl. 08:57


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 08:57
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 08:57
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 08:57
Jónína Rós Guðmundsdóttir (JRG), kl. 08:57
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 08:57
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 08:57
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 08:57
Þór Saari (ÞSa), kl. 08:57

BVG var fjarverandi.
KLM yfirgaf fundinn kl. 10:03

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð síðasta fundar. Kl. 10:27
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 128. mál - skipan ferðamála Kl. 08:58
Á fund nefndarinnar komu Óðinn Sigþórsson og Árni Snæbjörnsson frá Landssambandi veiðifélaga, Berglind Ólafsdóttir frá menningar- og ferðamálsviði Reykjavíkurborgar og Ólöf Ýrr Atladóttir og Helena Þ. Karlsdóttir frá Ferðamálastofu. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til þingmálsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) Önnur mál. Kl. 10:26
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:26