53. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 2. júní 2016 kl. 08:30


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 08:30
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 08:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 08:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 08:30
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 08:30
Kristján L. Möller (KLM), kl. 08:30
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 08:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 08:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 08:30

BjÓ var á fundinum í gegnum síma en vék af fundi kl. 9.45.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 08:30
Fundargerðir 51. og 52. fundar voru samþykktar.

2) 680. mál - búvörulög o.fl. Kl. 08:30
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Oddnýju Steinu Valsdóttur, Svavar Halldórsson og Þórarin Inga Pétursson frá Landssamtökum sauðfjárbænda og Frosta Ólafsson frá Viðskiptaráði Íslands.

3) 326. mál - áhættumat vegna ferðamennsku Kl. 10:15
Málið var afgreitt frá nefndinni. Undir nefndarálit rita: JónG, LRM, HarB, ÁsF, KLM, PJP, ÞorS, ÞórE.

4) Önnur mál Kl. 10:25
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:25