22. fundur
atvinnuveganefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 18. apríl 2018
kl. 15:30
Mættir:
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 15:30Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 15:30
Álfheiður Eymarsdóttir (ÁlfE) fyrir Smára McCarthy (SMc), kl. 15:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 15:30
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 15:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NF), kl. 15:30
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 15:30
Inga Sæland og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir boðuðu forföll.
Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 15:30
Fundargerð 20. fundar (12. apríl 2018) var samþykkt.
2) 456. mál - ábúðarlög Kl. 15:30
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið og fékk á sinn fund Elísabetu Önnu Jónsdóttur frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem kynnti efni frumvarpsins fyrir nefndarmönnum.
3) 433. mál - Fiskræktarsjóður Kl. 15:45
Nefndin hóf umfjöllun sína um málið og fékk á sinn fund Jóhann Guðmundsson og Sigríði Norðmann frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem kynntu frumvarpið fyrir nefndarmönnum.
4) Önnur mál Kl. 16:00
ÁsF óskaði eftir að farið yrði yfir veiðar á humri í nefndinni.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 16:00