19. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 17. nóvember 2020 kl. 09:00


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 09:00
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:00
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:00
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:00

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) Efnahagsleg áhrif aðgerða á landamærum Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Tómas Brynjólfsson, Ólaf Heiðar Helgason, Má Guðmundsson og Ásdísi Kristjánsdóttur, fulltrúa starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg áhrif sóttvarna.

3) Samkeppnismat OECD á ferðaþjónustu og byggingariðnaði á Íslandi. Kl. 10:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Aniu Thieman frá Efnahags- og framfarastofnuninni OECD og Heimi Skarphéðinsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Nefndarmönnum í atvinnuveganefnd var boðið að taka þátt í umfjöllun um dagskrármálið.

4) Önnur mál Kl. 11:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:25