3. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 14. desember 2021 kl. 09:10


Mætt:

Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 09:10
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:10
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:10
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:10
Halldóra Mogensen (HallM) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 09:10
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:10
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) fyrir (ÁBG), kl. 09:10

Guðbrandur Einarsson vék af fundi kl. 10:30 vegna annarra þingstarfa. Diljá Mist Einarsdóttir vék af fundi kl. 10:40 vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 4. mál - skattar og gjöld Kl. 09:10
Ákveðið var að Guðrún Hafsteinsdóttir verði framsögumaður málsins.

3) 3. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022 Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ólaf Stephensen frá Félagi Atvinnurekenda, Róbert Farestveit og Arnald Sölva Kristjánsson frá Alþýðusambandi Íslands, Benedikt S. Benediktsson frá SVÞ - Samtökum verslunar og þjónustu, Gunnar Val Sveinsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Jóhannes Jóhannesson frá Bílgreinasambandinu og´Björgu Ástu Þórðardóttur, Ingólf Bender, Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur og Lárus M.K. Ólafsson frá Samtökum iðnaðarins.

4) 164. mál - fjárhagslegar viðmiðanir o.fl. Kl. 11:35
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðrúnu Þorleifsdóttur, Benedikt Hallgrímsson og Gunnlaug Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

5) 137. mál - tekjuskattur Kl. 11:50
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðrúnu Ingu Torfasdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

6) Önnur mál Kl. 12:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00