57. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, laugardaginn 11. júní 2022 kl. 10:00


Mætt:

Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 10:15
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 10:15
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 10:15
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 10:15
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 10:15
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 10:15
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 10:15
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 10:15
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 10:15

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:15
Frestað.

2) 690. mál - hækkun lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs Kl. 10:45
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðrúnu Þorleifsdóttur, Önnu Valbjörgu Ólafsdóttur og Tinnu Finnbogadóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta með breytingartillögu standa Guðrún Hafsteinsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir boðaði álit minni hluta nefndar, þá boðaði Jóhann Páll Jóhannsson einnig nefndarálit minni hluta.

3) 533. mál - fjármálafyrirtæki o.fl. Kl. 10:55
Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta með breytingartillögu standa Guðrún Hafsteinsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson og Steinunn Þóra Árnadóttir.

4) 679. mál - virðisaukaskattur Kl. 11:00
Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta með breytingartillögu standa Guðrún Hafsteinsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir boðaði álit minni hluta nefndar.

5) 80. mál - vextir og verðtrygging og húsaleigulög Kl. 11:15
Frestað.

6) Önnur mál Kl. 11:30
Nefndin fjallaði um starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00