40. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 5. febrúar 2020 kl. 15:30


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 15:30
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 15:30
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 15:30
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 15:30
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 15:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 15:30
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 15:30
Smári McCarthy (SMc), kl. 15:30

Silja Dögg Gunnarsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 15:30
Fundargerð 39. fundar var samþykkt.

2) 529. mál - brottfall ýmissa laga Kl. 15:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Harald Steinþórsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

3) 313. mál - stimpilgjald Kl. 16:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur og Heiðmar Guðmundsson frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.

4) Lög um neytendalán (smálán) Kl. 15:45
Nefndin fjallaði um málið.

5) 332. mál - breyting á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar Kl. 16:30
Nefndin fjallaði um málið.

6) 99. mál - skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða Kl. 15:40
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti og að Þorsteinn Víglundsson yrði framsögumaður þess.

7) 110. mál - rafræn birting álagningarskrár Kl. 15:40
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti og að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður þess.

8) Önnur mál Kl. 16:35
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:35