70. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 11. maí 2021
kl. 10:35
Mætt:
Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 10:35Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 10:35
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 10:35
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:35
Hjálmar Bogi Hafliðason (HBH), kl. 10:35
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 10:35
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB) fyrir Oddnýju G. Harðardóttur (OH), kl. 10:35
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 11:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 10:35
Bryndís Haraldsdóttir vék af fundi kl. 11:05.
Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 10:35
Dagskrárlið frestað.
2) 769. mál - breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru Kl. 10:35
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu.
Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu, þar af Smári McCarthy og Rósa Björk Brynjólfsdóttir með fyrirvara.
3) 700. mál - breyting á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign Kl. 10:45
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þóreyju S. Þórðardóttur og Gylfa Jónasson frá Landssamtökum lífeyrissjóða og Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur og Sonju Ýr Þorbergsdóttur frá BSRB.
4) 3. mál - tekjuskattur Kl. 11:35
Dagskrárlið frestað.
5) Saknæmisskilyrði 172. gr. tollalaga Kl. 11:35
Nefndin fjallaði um málið.
6) 98. mál - ástandsskýrslur fasteigna Kl. 11:40
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu.
Allir nefndarmenn utan Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar rituðu undir nefndarálit með breytingartillögu.
7) Önnur mál Kl. 11:40
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:40