1. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 19. september 2023 kl. 09:10


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 09:10
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:10
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:12
Björn Leví Gunnarsson (BLG) fyrir (ESH), kl. 09:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:12
Elva Dögg Sigurðardóttir (EDS), kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:10

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Kosning formanns Kl. 09:10
Ágúst Bjarni Garðarsson lagði til að kosið yrði að nýju um formann nefndarinnar skv. 4. mgr. 14. gr. laga um þingsköp Alþingis og að Teitur Björn Einarsson yrði formaður. Allir viðstaddir nefndarmenn studdu beiðnina og var hún því rétt fram borinn.

Gengið var til kosninga og kosið um embætti formanns. Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Steinunn Þóra Árnadóttir og Teitur Björn Einarsson kusu Teit Björn Einarsson í embætti formanns.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Elva Dögg Sigurðardóttir og Oddný G. Harðardóttir sátu hjá.

Teitur Björn Einarsson var því rétt kjörinn formaður í stjórn nefndarinnar.

2) Starfið framundan Kl. 09:15
Formaður kynnti drög að dagskrá næstu funda og nefndin fjallaði um starfið framundan.

3) 2. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024 Kl. 09:17
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Teitur Björn Einarsson formaður verði framsögumaður þess.

4) Önnur mál Kl. 09:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:20