9. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 19. október 2023 kl. 09:10


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 09:10
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:10
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:15
Elva Dögg Sigurðardóttir (EDS), kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Orri Páll Jóhannsson (OPJ) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 09:10

Diljá Mist Einarsdóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 7. og 8. fundar voru samþykktar.

2) 2. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024 Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur og Björgu Evu Erlendsdóttur frá Landvernd og Bergþór Heimi Þórðarson, Sigríði Hönnu Ingólfsdóttur og Stefán Vilbergsson frá ÖBÍ réttindasamtök.

3) 184. mál - endurskoðendur o.fl. Kl. 09:42
Nefndin fjallað um málið og fékk á sinn fund Halldór Inga Pálsson og Ingileif Eyleifsdóttur frá Skattinum og Áslaugu Árnadóttur frá Endurskoðendaráði.

4) Önnur mál Kl. 09:53
Oddný G. Harðardóttir, framsögumaður nefndarinnar í 3. máli - réttlát græn umskipti, óskaði eftir að málið yrði tekið á dagskrá.

Nefndin ræddi starfið framundan. Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00