28. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 14. desember 2023 kl. 19:05


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 19:05
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 19:05
Björn Leví Gunnarsson (BLG) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 19:05
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 19:05
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 19:05
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) fyrir Diljá Mist Einarsdóttur (DME), kl. 19:05
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 19:05
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 19:05
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir (ÁLÞ), kl. 19:05

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) 507. mál - kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða Kl. 19:05
Nefndin ræddi drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af eftirfarandi nefndarmönnum: Teiti Birni Einarssyni, Ágústi Bjarna Garðarssyni, Njáli Trausta Friðbertssyni, Jóhanni Friðriki Friðrikssyni, Tómasi A. Tómassyni, Guðbrandi Einarssyni og Steinunni Þóru Árnadóttur. Björn Leví Gunnarsson og Oddný G. Harðardóttir sátu hjá.

Undir nefndarálit með breytingartillögu meiri hluta rita: Teitur Björn Einarsson, Ágúst Bjarni Garðarsson, Njáll Trausti Friðbersson, Jóhann Friðrik Friðriksson og Steinunn Þóra Árnadóttir.

Oddný G. Harðardóttir lagði fram eftirfarandi bókun: Ég geri athugasemdir við að nefndarálit ásamt breytingartillögum við mál nr. 507 um kílómetragjald kemur seint fram og of lítill tími gefinn til umræðna og gerð nefndarálita fram að umræðum í þingsal.

2) Önnur mál Kl. 19:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 19:20