37. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 15. febrúar 2016
kl. 09:30
Mættir:
Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:30Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 09:30
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:30
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 09:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:40
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 09:30
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 09:30
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:30
Ásta Guðrún Helgadóttir var fjarverandi.
Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerðir 35. og 36. fundar voru samþykktar.
2) 420. mál - Seðlabanki Íslands Kl. 09:35
Esther Finnbogadóttir og Hafsteinn Hafsteinsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu mættu á fund nefndarinnar, kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) 383. mál - fasteignalán til neytenda Kl. 10:30
Eiríkur S. Svavarsson frá Lögmannafélagi Íslands mætti á fund nefndarinnar, fór yfir umsögn félagsins og svaraði spurningum nefndarmanna.
4) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert á fundinum.
Fundi slitið kl. 11:00