31. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 17. janúar 2019 kl. 10:00


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 10:00
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 10:15
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 10:00
Ásgerður K. Gylfadóttir (ÁsgG), kl. 10:00
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir (JVG) fyrir Oddnýju G. Harðardóttur (OH), kl. 10:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 10:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 10:00
Smári McCarthy (SMc), kl. 10:00

Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:00
Fundargerðir 28. og 30. fundar voru samþykktar.

2) 412. mál - Bankasýsla ríkisins Kl. 10:00
Nefndin fékk á sinn fund Hrafn Hlynsson og Jón Gunnar Vilhelmsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti sem kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 413. mál - kjararáð Kl. 10:15
Nefndin fékk á sinn fund Gunnar Björnsson, Björn Rögnvaldsson og Pétur Jónasson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti sem kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 433. mál - skattlagning tekna erlendra lögaðila í lágskattaríkjum o.fl. Kl. 10:45
Nefndin fékk á sinn fund Ingibjörgu Helgu Helgadóttur, Steinar Örn Steinarsson, Rakel Jensdóttur, Guðrúnu Ingu Torfadóttur og Hlyn Ingason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti sem kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) 434. mál - Þjóðarsjóður Kl. 11:15
Nefndin fékk á sinn fund Nökkva Bragason og Harald Steinþórsson sem kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

6) 304. mál - tollalög Kl. 10:40
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu með atkvæðum allra viðstaddra nefndarmanna. Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit.

7) Önnur mál Kl. 12:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00