74. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 11. júní 2019 kl. 08:36


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 08:36
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 08:45
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 08:36
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 08:36
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 08:36
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 08:36
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 08:36
Páll Magnússon (PállM), kl. 08:39
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 08:39

Njáll Trausti Friðbertsson var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 953. mál - breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022 Kl. 08:36
Til fundarins komu Björn Þór Hermannsson, Jón Viðar Pálmason og Magnús Óskar Hafsteinsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þeir fóru yfir spurningalista sem nefndin hafi áður sent þeim vegna breytingatillagna ráðuneytisins við málið.

2) Önnur mál Kl. 09:58
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 09:59
Fundargerð 73. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:00