101. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 4. september 2020 kl. 09:19


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:19
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:19
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:19
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:19
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:19
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:19
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:19
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:19
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:19
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:19

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 27. ágúst sl.

Bókað:

1) 969. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 09:19
Nefndin afgreiddi málið. Að afgreiðslunni og nefndaráliti stendur meiri hluti nefndarinnar en hann skipa Willum Þór Þórsson, Haraldur Benediktsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Páll Magnússon, Njáll Trausti Friðbertsson og Birgir Þórarinsson. Minni hlutinn sat hjá við afgreiðslunni. Hann skipa Björn Leví Gunnarsson, Inga Sæland og Ágúst Ólafur Ágústsson og munu þau leggja fram hvert fyrir sig nefndarálit minni hluta.

2) 970. mál - ríkisábyrgðir Kl. 09:19
Nefndin afgreiddi málið. Að afgreiðslunni stendur meiri hluti nefndarinnar en hann skipa Willum Þór Þórsson, Haraldur Benediktsson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Páll Magnússon, Njáll Trausti Friðbertsson og Birgir Þórarinsson. Minni hlutinn sat hjá við afgreiðslunni. Hann skipa Björn Leví Gunnarsson, Inga Sæland og Ágúst Ólafur Ágústsson. Þar sem frumvarp til fjáraukalaga og frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkisábyrgðir eru flutt og afgreidd saman verða fyrrgreind nefndarálit um bæði málin.

3) Önnur mál Kl. 09:48
Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 09:49
Fundargerð 100. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 09:50