26. fundur
fjárlaganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 14. desember 2023 kl. 12:30


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 12:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 12:30
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 2. varaformaður, kl. 12:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 12:30
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 12:30
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 12:30
Kristrún Frostadóttir (KFrost), kl. 12:30
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 12:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 12:30
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 12:30

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 481. mál - fjáraukalög 2023 Kl. 12:30
Til fundarins komu Björn Þór Hermannsson, Hlynur Hreinsson, Katrín Anna Guðmundsdóttir og Hrafn Hlynsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.Lögð voru fram drög að bréfi fjármála- og efnahagsráðuneytisins dags. 14. desember 2023 en í því fer fjármála- og efnahagsráðherra þess á leit við fjárlaganefnd Alþingis að við 3. umræðu frumvarps til fjáraukalaga ársins 2023 verði gerðar þær breytingar á fjárheimildum málefnasviða og málaflokka í A1-hluta ríkissjóðs sem fram koma í meðfylgjandi yfirlitum. Gestirnir kynntu breytingatillögurnar og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra.
Fundi var frestað kl. 13:45 - 19:30.
Nefndin hélt umfjöllun um frumvarpið áfram til kl. 19:57.

2) Önnur mál Kl. 19:58
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 19:59
Fundargerð 25. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 20:00