62. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 10. maí 2019 kl. 09:05


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:05
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:05
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:05
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:11
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:05
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:05
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:05
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 10:07
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:16

Inga Sæland vék af fundi kl. 9:30 til að fara á fund með utanríkismálanefnd. Páll Magnússon vék af fundi kl. 11:40.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 750. mál - fjármálaáætlun 2020--2024 Kl. 09:05
Til fundarins komu Ármann Kr. Ólafsson og Páll Björgvin Guðmundsson frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þeir kynntu umsögn samtakanna og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.
Kl. 10:00. Marinó Melsteð, Gunnar Snorri Guðmundsson, Björn Hrannar Björnsson og Brynjar Örn Ólafsson frá Hagstofu Íslands. Þeir kynntu hagspá Hagstofunnar og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.

2) Önnur mál Kl. 11:50
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:52
Fundargerð 61. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:53