12. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 1. nóvember 2019 kl. 09:22


Mættir:

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 09:22
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:22
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:22
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:22
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:22
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:22
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:22
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:22
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:22

Líneik Anna Sævarsdóttir vék af fundi 11:39. Þorsteinn Sæmundsson vék af fundi 11:50.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:22
Fundargerð 11. fundar var samþykkt.

2) Verklag ráðherra vegna ábendinga framkvæmdahóps FATF vegna aðgerðar gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sbr. 2. mgr. 8. tölul. 13. gr. þingskapa. Kl. 09:23
Á fund nefndarinnar komu Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri og Teitur Már Sveinsson frá dómsmálaráðuneytinu. Gestir fjölluðu um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Staða mála Kl. 11:36
Nefndin ræddi starfið framundan.

4) Önnur mál Kl. 11:51
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:51