38. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 5. febrúar 2020
kl. 09:05
Mætt:
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 09:05Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:54
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:05
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:05
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:17
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:05
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:05
Þorsteinn Sæmundsson og Þórarinn Ingi Pétursson boðuðu forföll. Óli Björn Kárason vék af fundi kl. 10:00.
Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:05
Fundargerð 38. fundar samþykkt.
2) 523. mál - varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands Kl. 09:05
Á fundinn komu Oddur Þorri Viðarsson og Ásgerður Snævarr frá forsætisráðuneytinu kynntu frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2018 Kl. 09:56
Á fundinn komu Oddur Þorri Viðarsson og Ásgerður Snævarr frá forsætisráðuneytinu og gerðu grein fyrir áherslu á að auka gagnsæi miðlunar, upplýsingarétt, fræðslu og símenntun starfsmanna m.a. með námskeiðum í stjórnarráðsskólanum. Þá svöruðu þau spurningum nefndarmanna.
4) 139. mál - skipun rannsóknarnefndar til að fara yfir starfshætti í Guðmundar- og Geirfinnsmálum Kl. 10:36
Á fundinn komu Margrét Kristín Pálsdóttir og Hulda Elsa Björgvinsdóttir frá Lögreglustjóranum í Reykjavík og Snorri Magnússon frá Landssambandi lögreglumanna og gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.
5) Önnur mál Kl. 11:03
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:03