5. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 19. október 2020
kl. 09:30
Mætt:
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:30Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:30
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:30
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:30
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:30
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:30
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:30
Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:30
Dagskrárlið frestað.
09:30 Á fund nefndarinnar mætti Björg Thorarensen frá lagadeild Háskóla Íslands. Gerði hún grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
10:30 Þá mætti á fund nefndarinnar Reimar Pétursson sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
3) 80. mál - Þingsköp Alþingis Kl. 10:17
Formaður gerði grein fyrir málinu. Ákveðið að fá kynningu um málið frá skrifstofu Alþingis.
4) 27. mál - kosningar til Alþingis Kl. 10:16
Tillaga um að Andrés Ingi Jónsson verði framsögumaður málsins var samþykkt.
Tillaga um að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti var samþykkt.
5) Önnur mál Kl. 10:18
Nefndin ræddi málsmeðferð í 8. máli, frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis (fjarfundir nefnda). Ákveðið að óska eftir nánari upplýsingum frá rannsókna- og upplýsingaskrifstofu um reglur Norræna þjóðþinga um fjarfundi.
Hlé var gert á fundi frá kl. 10:24-10:29.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:10