9. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 15. október 2015 kl. 08:30


Mættir:

Ögmundur Jónasson (ÖJ) formaður, kl. 08:30
Birgir Ármannsson (BÁ) 1. varaformaður, kl. 08:30
Birgitta Jónsdóttir (BirgJ) 2. varaformaður, kl. 08:30
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 08:30
Brynjar Níelsson (BN), kl. 08:30
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 08:30
Helgi Hjörvar (HHj), kl. 08:50
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 08:30

Höskuldur Þórhallsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Elín Valdís Þorsteinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:47
Fundargerð 8. fundar var samþykkt.

2) Bréf umboðsmanns Alþingis vegna athugunar á brotum á reglum um gjaldeyrishöft og lagagrundvelli fyrir flutningi verkefna Seðlabanka Íslands í einkahlutafélag Kl. 08:30
Á fundinn komu Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis og Hafsteinn Dan Kristjánsson aðstoðarmaður umboðsmanns Alþingis. Tryggvi gerði grein fyrir efni bréfsins og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 09:49
Nefndin ræddi tilhögun umfjöllunar um skýrslur Ríkisendurskoðunar og tillögur um að gera vinnuna við þær markvissari.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 09:53